Fara í efni

„Þrúðvangur veitingahús“ á matvælabraut

Þessa dagana starfrækja nemendur á matvælabraut Þrúðvang veitingahús. Opið var í hádeginu sl. þriðjudag, aftur í gær og síðasti opnunardagur er í dag, fimmtudaginn 11. apríl, kl. 11.30 til 13.00. Matseðilinn er sannarlega girnilegur.

Matseðill Þrúðvangs er svohljóðandi:

Súpa dagsins

Kjúklingasalat með ristuðum furuhnetum, fylltri papriku, sólþurkuðum tómat, brauðteningum og sinnepsdressing
Rjómalagað pasta með skinku og sveppum borið fram með salati og ostgljáðu hvítlauksbrauði.
Grillsteikt laxafiðrildi með Hollandersósu, soðbökuðum kartöflum og smjörsteiktu rótargrænmeti.

Lítil eplakaka með vanilluís og karamellusósu.

Verð fyrir súpu og aðalrétt er 1500 kr.
Verð fyrir súpu, aðalrétt og eftirrétt er 2000 kr.