Fara í efni

ÍSLE2ÁÁ05S - Íslenska með áherslu á stúdentsprófsáfanga

Í boði : Alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er lögð megináhersla á að nemendur fái tækifæri og aðstoð við að taka efni ákveðinna íslenskuáfanga á eigin forsendum og hraða. Áfanganum er ætlað að efla sjálfstraust nemenda og vilja þeirra til að ná eigin markmiðum. Nemendur verða þjálfaðir í að nýta sér hjálpargögn s.s. yfirlestrarforrit og orðabækur/tölvuorðabækur til að bæta og lagfæra eigin texta. Notast verður við námsefni úr almennum áföngum í VMA (ÍSLE1FL05, ÍSLE2HS05 og ÍSLE2KB05).

Markmið:

Þekkingarmarkmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnhugtökum í stafsetningu, bókmenntafræði, málfræði og ljóðgreiningu
  • helstu reglum í tengslum við ritun
  • mikilvægum atriðum sem einkenna góða framsögn og umræður
  • notkun hjálpargagna
  • mikilvægi þess að búa að góðri lestrarfærni og lesskilningi

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina hefðbundin ljóð með tilliti til myndmáls, stílbragða og bragfræði
  • lesa sér til gagns og gamans skáld- og smásögur og greina inntak þeirra
  • skrifa mismunandi gerðir texta og tjá sig munnlega og skriflega
  • taka aðalatriði úr texta og átta sig á meginefni hans
  • beita viðeigandi hjálpargögnum við frágang ritsmíða
  • vinna fjölbreytt verkefni þar sem reynir m.a. á sköpun og frumkvæði

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fjalla um inntak skáld- og smásagna, lesa og túlka texta
  • greina einföld atriði í málfræði og stafsetningu og dýpka lesskilning sinn
  • nýta sér helstu ritreglur til að bæta eigin ritfærni
  • vinna skapandi verkefni, t.d. í tengslum við vinnu með texta
  • nota viðeigandi hjálpargögn við frágang eigin texta
Getum við bætt efni síðunnar?