Fara í efni

Stefnur

Forvarnastefna

Verkmenntaskólinn á Akureyri leggur áherslu á að nemendur skólans tileinki sér jákvætt viðhorf til heilbrigðs lífernis og öðlist sterka sjálfsmynd og sjálfsvirðingu. Lögð er áhersla á að styrkja félagslíf sem eflir félagsþroska nemenda og minnkar líkur á neyslu vímuefna.

Skólinn vill einnig aðstoða þá sem hafa ánetjast vímuefnum og í skólanum gilda skýrar reglur um notkun tóbaks, þ.m.t. nef- og munntóbaks auk rafsígaretta og nikótínpúða. Reykingar og öll notkun tóbaks er óheimil í húsnæði og á lóð skólans sem og notkun áfengis og annarra vímugjafa. Sömu reglur gilda um ferðalög og aðra viðburði í nafni skólans.

Markmið Verkmenntaskólans á Akureyri er að efla alhliða forvarnir og heilsuvernd. Í því felst m.a.

  • að taka þátt í verkefninu -  Heilsueflandi framhaldsskóli
  • að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og traustri sjálfsmynd nemenda
  • að koma í veg fyrir reykingar, áfengisneyslu og aðra vímuefnanotkun nemenda,
  • að styðja nemendur sem vilja losna úr ánauð vímuefna.

Leiðir skólans að þessum markmiðum felast einkum í starfi forvarnafulltrúa, skýrum reglum og almennri fræðslu. Þá leggur skólinn áherslu á fjölbreytni í líkamsræktarkennslu og að nemendum bjóðist hollur matur á hóflegu verði innan skólans.

Forvarnafulltrúi er starfandi í skólanum sem ætlað er

  • að samhæfa forvarnafræðslu fyrir nemendur og starfsfólk
  • að vera til viðtals fyrir nemendur
  • að aðstoða nemendur sem vilja hætta neyslu og styðja nemendur sem hafa valið sér líf án áfengis, tóbaks og ólöglegra vímuefna
  • að vera talsmaður forvarnastefnunnar og fylgja henni eftir í samráði við stjórnendur

Forvarnarfulltrúi er Kristján Bergmann Tómasson (Mummi), hann er með netfangið kristjan.b.tomasson@vma.is. Einstaklingar sem leita til hans njóta fulls trúnaðar.

Nemendur geta látið forvarnafulltrúa, námsráðgjafa, umsjónarkennara, skólahjúkrunarfræðing eða skólayfirvöld vita hafi þeir vitneskju eða rökstuddan grun um hverskonar neyslu ólöglegra vímuefna eða sjálfsskemmandi hegðun nemenda. Saman mynda þessir aðilar forvarnateymi VMA.

 Gæðastefna

Hlutverk

Samkvæmt lögum um framhaldsskóla er hlutverk Verkmenntaskólans á Akureyri að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi með því að bjóða hverjum nemanda nám við hæfi svo að hann verði sem best búin undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi. Framhaldsskólinn býr nemendur undir störf í atvinnulífinu og frekara nám.

Skólinn skal leitast við að efla færni nemenda í íslensku máli, bæði töluðu og rituðu, efla siðferðisvitund, ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, sjálfstraust og umburðarlyndi nemenda. Þjálfa þá í öguðum og sjálfstæðum vinnubrögðum, jafnrétti og gagnrýninni hugsun. Kenna þeim að njóta menningarlegra verðmæta og hvetja til þekkingarleitar. Framhaldsskólar sinna miðlun þekkingar og þjálfun nemenda þannig að þeir öðlist færni til að gegna sérhæfðum störfum og hafi forsendur til að sækja sér frekari menntun.

Gæðastefna

Í Verkmenntaskólanum á Akureyri er leitast við að veita nemendum góða menntun í samræmi við ytri kröfur sem gerðar eru til náms. Þá fléttast gildi skólans inn í allt skólastarf og endurspegla skólabrag hans. Að þessu er unnið með virku gæðastjórnunarkerfi, stöðugum umbótum og skipulegri uppbyggingu. Áhersla er lögð á að Verkmenntaskólinn sé góður skóli fyrir alla nemendur sem hann sækja. Þetta felur í sér eftirfarandi:

  • Gildi skólastarfsins og einkunnarorð skólans eru: Fagmennska - Fjölbreytni- Virðing.
  • Starf VMA einkennist af gagnkvæmri virðingu, umhyggju, umburðarlyndi og jafnrétti.
  • Námsleiðir eru fjölbreyttar og koma til móts við væntingar, hæfileika, áhuga og þarfir fjölbreytts nemendahóps og atvinnulífs á svæðinu.
  • Lögð er áhersla á að rækta það besta í nemendum, glæða áhuga nemenda á náminu og efla sjálfstæði þeirra, sjálfstraust, félagsþroska og samskiptahæfni.
  • Lögð er áhersla á að náms- og starfsumhverfi sé eins aðlaðandi og áhugavekjandi og kostur er.
  • Skólinn býður upp á bestu fáanlega kennslu og býr kennurum sínum og nemendum vinnuskilyrði í samræmi við það.
  • Kennurum er boðið upp á endurmenntun með það að markmiði að bæta kennsluhætti og gera þeim starfið ánægjulegra.
  • Í boði er fjölbreytt nám á bóklegu og verklegu sviði. Við skipulag náms og framkvæmd kennslu er höfð hliðsjón af samþykktum námsskrám, gæðakröfum og þörfum atvinnulífs og samfélags.
  • Kennarar nota fjölbreytta kennsluhætti og námsmat.
  • Í VMA er lögð áhersla á heilbrigt og þróttmikið félagslíf nemenda um leið og unnið er markvisst að forvörnum og stuðlað að góðri líkamlegri og andlegri heilsu nemenda.
  • sýnir gott fordæmi í umhverfismálum og nemendur eru meðvitaðir um eigin ábyrgð á þessu sviði.
23.11.2024

Lýðheilsustefna

Lýðheilsustefna VMA skal stuðla að bættri líðan, samstöðu, betri heilsu og jákvæðu andrúmslofti innan skólans.

Í stuttu máli er lýðheilsa samheiti yfir heilsuvernd og forvarnir. Lýðheilsustarf miðar að því að viðhalda og bæta heilbrigði fólks. Lýðheilsustarf kemur því m.a. inn á félags- umhverfis- og efnahagsmál. Lýðheilsustefna skal lýsa áherslum VMA.

Lýðheilsustefna VMA

  1. Stefna VMA er að hvetja nemendur til daglegrar hreyfingar. Það er gert með fjölbreyttu úrvali íþróttaáfanga eins og boltaíþróttir, skíði, útivist, jóga, dans, og skokk. Það er einnig gert með því að hvetja nemendur til að ganga eða hjóla í skólann.
  2. Stefna VMA er að hvetja starfsfólk til daglegrar hreyfingar. Það er gert m.a. með því að starfsfólk eigi kost á nota þreksal VMA eftir vinnu-/kennsludag, a.m.k. tvisvar í viku.
  3. Starfsfólk VMA stefnir að því að taka þátt í: Hjólað í vinnuna í maí mánuði.
  4. Starfsfólk VMA stefnir að því að fara í a.m.k. eina útivistarferð á haustönn og eina á vorönn. Ferðunum lýkur gjarnan með heilbrigðri samveru og mega gjarnan vera fjölskylduferðir, fyrir börn og fullorðna. Fleiri og/eða krefjandi ferðir eru æskilegar sumar sem vetur.
  5. VMA stefnir að halda heilsueflandi námskeið eftir föngum og stuðla að þátttöku í heilsueflandi viðburðum.
  6. Starfsfólk VMA stefnir að því að endurskoða og þróa lýðheilsustefnuna.

Að samfélag skólans sé jákvætt og að eftirsóknarvert sé að starfa innan þess.

 

 Manauðsstefna

Lögð er áhersla á að velja til skólans starfsfólk sem uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til hinna ýmsu starfa með hliðsjón af m.a. menntun og reynslu.

Þegar tekið er á móti nýjum starfsmönnum er unnið samkvæmt sérstökum reglum um móttöku þeirra. Áhersla skal lögð á að umsækjendur kynni sér stefnu skólans og markmið og geri sér grein fyrir því fyrir hvað skólinn stendur. Mikilvægt er að nýtt starfsfólk geri sér þessi atriði ljós og felli sig við þau frá upphafi.

Kappkostað er að vinnuaðstaða starfsmanna sé með þeim hætti að þeir geti sinnt störfum sínum af kostgæfni. Kappkostað er að mötuneyti starfsfólks bjóði upp á sem fjölbreyttast fæði á sem lægstu verði í samræmi við kjarasamninga og sjálfsagðar kröfur sem gera má til góðs vinnustaðar.

Þess skal gætt að starfsmenn eigi greiðan aðgang að skólameistara og öðrum stjórnendum um persónuleg mál sín er snerta starf og líðan á vinnustað.

Einnig er mikilvægt að starfsmenn séu opnir fyrir því að leita til samstarfsfólks um aðstoð og leiðsögn og að slíkt sé gagnkvæmt.

Þá leggur skólinn áherslu á að hvetja starfsfólk til endurmenntunar í samræmi við yfirlýsta stefnu á þeim vettvangi og stuðla að henni eftir því sem hann er í stakk búinn til þess hverju sinni.

Reynt er að koma til móts við fjölskyldufólk úr röðum kennara eins og kostur er til þess að það geti á sem bestan hátt annast uppeldi barna sinna og átt sem mestan tíma með fjölskyldum sínum. Af þeim sökum er kappkostað að vinnuskylda þeirra sé innt af hendi á hefðbundnum starfstíma skólans og innan dagvinnumarka. Reynt er t.d. að komast hjá því að kennsla og fundir nái lengra fram á daginn en til kl. 16.00.

Þá er eftir atvikum kappkostað að á hverri önn eigi bæði nemendur og kennarar skólans kost á einni langri helgi. Leitast er við að hafa sambærileg leyfi í grunnskólum svæðisins til hliðsjónar þegar langar helgar eru skipulagðar.

Endurmenntunarstefna

Í jafnfjölbreytilegum skóla og VMA er gert ráð fyrir því að kennarar styðjist við margvíslegar kennsluaðferðir allt eftir því um hvers konar nám sé um að ræða.

Stefnt er að því að kennarar skólans fylgist vel með hver á sínu sviði auk þess sem þeir kynni sér nýjungar og ný viðhorf í kennslufræðum. Annars vegar er það gert með því að hvetja kennara til að sækja greinabundin endurmenntunarnámskeið. Hins vegar er lagt kapp á að í skólanum séu haldin námskeið eða fyrirlestrar þar sem öllum kennurum gefst kostur á að kynnast nýjungum í kennsluháttum og skólamálum.

Þá er það stefna skólans að öðrum starfsmönnum hans sé gert kleift að sækja námskeið er gætu bætt þá og þroskað í starfi auk þess að bæta líðan þeirra á vinnustað.

Þetta er gert með því að fá í skólann heimsóknir sérfræðinga til námskeiða- eða fyrirlestrarhalds. Þá er reynt að gefa fólki færi á að sækja námskeið utan skólans bæði með hjálp endurmenntunarsjóða stéttarfélaga og með því að styrkja þá beint.

Þá er lögð áhersla á að sérfræðingar innan skólans, m.a. í upplýsingatækni og kennslusfræðum, haldi námskeið fyrir starfsfólk eftir því sem þörf krefur og kostur er.

Það er hverjum skóla mikilvægt að hafa á að skipa góðum kennurum á öllum sviðum þess námsframboðs sem boðið er upp á hverju sinni. Af þeim sökum er það ekki aðeins mikilvægt að kennarar sæki endurmenntun hver á sínu faggreinasviði - heldur einnig á vettvangi kennslufræða í því skyni að þeir bæti sig sem kennarar.

Af þessum sökum er kennurum bent á að skynsamlegt geti verið að nota námsleyfi sín í þessu skyni, fremur en að öðlast meiri þekkingu eða færni í einstökum kennslugreinum, sem þeir hafa verið ráðnir til að kenna á grundvelli menntunar sinnar.

Það er jafnframt stefna skólans að stuðla að öryggi bæði starfsmanna og nemenda t.d. með námskeiðshaldi.

Skólinn leggur fyrir í upphafi hvers skólaárs áætlun og hugmyndir um þá þætti á svið endurmenntunar sem hann vill leggja áherslu á hverju sinni. Geta þar bæði verið um að ræða stutt námskeið og fyrirlestrar í einn eða tvo daga eða námskeið sem ná yfir lengri tíma. Ef um lengri námskeið er að ræða er gert ráð fyrir því að skólinn og starfsmannafélög hans komi sér saman um fyrirkomulag, kostnað og greiðslur eða umbun.

Skólinn hefur sett sér viðveru stefnu sem er aðgengileg á innri vef stólans.

 Umhverfis- og loftslagsstefna

Um­hverf­is- og loftslags­stefna Verkmenntaskólinn á Akureyri (VMA) er sett fram til að leggja áherslu á um­hverf­is­sjón­ar­mið og tryggja að þau séu höfð að leið­ar­ljósi í dag­leg­um rekstri skólans. Stefnan tekur til allrar starfsemi skólans og miðar að því að sjónarmið umhverfisverndar og sjálfbærrar þróunar sé höfð að leiðarljósi. Lögð er áhersla á góða nýtingu auðlinda, lágmarka úrgang og auka endurvinnslu.

VMA skuld­bind­ur sig til að fylgja öll­um laga­kröf­um á sviði um­hverf­is­mála og hafa um­hverf­is­mál til hlið­sjón­ar í öll­um rekstri. Með um­hverf­is­stefn­unni skuld­bind­ur VMA sig til að vinna mark­visst að því að lág­marka nei­kvæð um­hverf­isáhrif og hafa já­kvæði áhrif á nærsam­fé­lag­ið á sviði um­hverf­is­mála. Í starf­semi skólans verður reynt að taka tillit til vistvænnar nálgunar, hag­kvæmr­ar notk­un­ar að­fanga og tækja­bún­að­ar, og end­ur­nýt­ing­ar og end­ur­vinnslu til að tak­marka um­hverf­is­spor.

Markmið

VMA stefnir á að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum með því að innleiða áherslur í umhverfismálum og gera aðgerðir skólans í umhverfismálum sýnilegar. Stefnt er að aukinni fræðslu og umræðu um umhverfismál innan skólans og virkja nemendur og starfslið skólans til þátttöku í umhverfismálum. Stefnt er á að auka hlutfall endurvinnslu í skólanum og draga úr orkunotkun. Stefnt er að því að hafa umhverfissjónarmið að leiðarljósi við öll innkaup. Verkmenntaskólinn á Akureyri stefnir að því að draga úr losun CO2 um 30% árið 2030 miðað við upphafs árið 2019. Markmið skólans er að umhverfisstefnan sé lifandi og í stöðugri endurskoðun.

Leiðir að markmiðunum

  • Umhverfis- og loftslagsstefna skólans á að vera aðgengileg á heimasíðu skólans. Einnig skal koma fram staða skólans í Grænum skrefum.
  • Reglulega skal koma með ábendingar og fræðslu til starfsmanna og nemenda.
  • Endurvinnslustöðvar skulu vera aðgengilegar starfsmönnum og nemendum í skólanum og almennar ruslatunnur eingöngu aðgengilegar á útvöldum stöðum.
  • Halda áfram að endurnýta hluti eins og t.d. möppur, húsgögn osfrv.
  • Draga úr orkunotkun með því að nota led ljós þar sem hægt er og láta ekki rafmagn vera í gangi að óþörfu.
  • Við innkaup skal hafa í huga umhverfissjónarmið og skal farið yfir vistvæn innkaup með innkaupaaðilum.
  • Styðja við sjálfsprottin verkefni starfsmanna sem stuðla að umhverfisvernd.
  • Kolefnisjafna starfsemi skólans eins og t.d. flug og bílaleigubíla.
  • Gæðaráð VMA skoðar stöðu skólans í umhverfismálum út frá mælipunkti þessarar stefnu í rýni stjórnenda sem er aðgengileg á heimasíðu skólans.
  • Halda utan um kolefnisspor skólans með því að fylla reglulega inn í Grænt bókhald.

Mælipunktar

  • Að losun á CO2 skólans minnki á milli ára út frá útreikningum á grænu bókhaldi. Mælt árlega

Aðgerðaáætlun til að ná markmiðum skólans má finna hér

Orðskýringar:

Grænt bókhald er verkfæri fyrir stofnanir til að fylgjast með losun gróðurhúsalofttegunda milli ára og skoða árangur í samanburði við aðrar stofnanir.
Græn skref er verkefni fyrir ríkisstofnanir til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna.

Aðgerðaáætlun

Persónuverndarstefna

Verkmenntaskólinn á Akureyri (VMA) hefur vernd persónuupplýsinga að leiðarljósi og leggur áherslu á að þær séu unnar með lögmætum, vönduðum og gagnsæjum hætti. Persónuupplýsinga er einungis aflað til að skólinn geti fullnægt lagalegri skyldu sinni við að þjónusta nemendur og ber starfsfólki að viðhafa ýtrustu gætni í meðferð þeirra. Í persónuverndarstefnu VMA kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn. Markmiðið er að nemendur og starfsmenn séu upplýstir um hvernig skólinn safnar og vinnur persónuupplýsingar.

Starfsfólk VMA skal hafa persónuverndarstefnuna að leiðarljósi í hvert skipti sem unnið er með persónuupplýsingar. Tryggt skal að allar persónuupplýsingar sem VMA safnar, nýtir eða vinnur með öðrum hætti, séu meðhöndlaðar í samræmi við lög um persónuvernd og persónuupplýsingar nr. 90/2018.

 

 

 

 

  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jafnlaunastefna

Verkmenntaskólinn á Akureyri fylgir eigin stefnu í jafnréttismálum, mannauðsstefnu og íslenskum lögum (nr 150/2020) sem varða jafnréttismál. Jafnlaunakerfi stofnunarinnar miðar að því að standast allar þær kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012.

Verkmenntaskólinn á Akureyri greiðir laun sem taka mið af þeim kröfum sem störf útheimta um menntun, þekkingu, hæfni og ábyrgð.

Markmið VMA er að vera eftirsóttur vinnustaður sem býr vel að starfsfólki og að ekki mælist kynbundinn launamunur hærri en 3%.

Til þess að ná því markmiði mun skólinn:

  • Innleiða vottað jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðli ÍST 85:2012 og nær það til allra starfsmanna, það sé skjalfest og því viðhaldið.
  • Framkvæma launagreiningu a.m.k. einu sinni á ári þar sem borin eru saman jafnverðmæt störf og athugað hvort mælist munur á launum eftir kyni.
  • Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugum úrbótum og eftirliti.
  • Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem varða stofnuna á hverjum tíma og staðfesta hlítni við lög.
  • Kynna stefnuna fyrir starfsmönnum. Stefna skal jafnframt vera aðgengileg í skjalakerfi stofnunarinnar.

Málastefna

Málstefna Verkmenntaskólans á Akureyri

Verkmenntaskólinn á Akureyri starfar innan íslensks samfélags, á íslensku málsvæði, og íslenska er opinbert tungumál skólans. Skólinn starfar samkvæmt lögum nr. 92/2008 um framhaldsskóla og í 2. gr þeirra kemur m.a. fram að hlutverk þeirra sé að „búa nemendur undir þátttöku í atvinnulífinu og frekara nám. Þeir skulu leitast við að efla færni nemenda í íslensku máli, bæði töluðu og rituðu.“ Jafnframt fjallar 35. gr laganna um tungumál og nemendur með annað móðurmál en íslensku og nemendur sem búsettir hafa verið erlendis um árabil en með íslensku sem móðurmál. Skólanum ber því rík skylda til að stuðla að viðgangi íslenskrar tungu og sjá til þess að hún sé nothæf – og notuð – í öllu skólastarfi. Jafnframt tekur skólinn þátt í alþjóðlegum samstarfsverkefnum. Málstefnu skólans er ætlað að styðja bæði við íslenskuna og alþjóðlegt starf hans.

Íslenska er sjálfgefið tungumál, hvort sem er í ræðu eða riti, í öllu starfi VMA; námi, kennslu og stjórnsýslu, og notuð nema sérstakar ástæður séu til annars. Þetta er í samræmi við lög nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls. Samkvæmt þeim er íslenskt táknmál fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta og nýtur því einnig sérstakra réttinda innan skólans.

Önnur tungumál, sérstaklega enska, eru einnig mikilvæg í skólastarfinu, vegna nemenda og starfsfólks með annað móðurmál en íslensku og þátttöku í alþjóðlegu samstarfi. Því er lögð áhersla á að upplýsingar um skólann og starfsemi hans séu aðgengilegar á ensku á vef skólans.

 

Útfærsla og framkvæmd

  1. Meðferð íslensks máls í ræðu og riti innan VMA sé til fyrirmyndar, bæði hjá nemendum og starfsfólki. Málnotkun innan skólans einkennist af virðingu fyrir einstaklingum og hópum og mismuni ekki.
  2. Íslenska er sjálfgefið kennslumál í VMA. Kennsla erlendra tungumála fer fram á því tungumáli sem er verið að kenna en íslenska notuð samhliða til að útskýra og tryggja rétt upplýsingaflæði.
  3. Í öllum áföngum skólans er lögð áhersla á læsi í víðum skilningi þess orðs, með áherslu á læsi á íslensku. Áhersla er á námsefni á íslensku í öllu námi og þar sem við á.
  4. Námsmat fari að jafnaði fram á íslensku. Leitast er við að koma til móts við nemendur með annað móðurmál en íslensku án þess þó að skipta um tungumál við kennslu og námsmat.
  5. Komið er til móts við nemendur með annað móðurmál en íslensku þannig að þau hafi tækifæri til að viðhalda móðurmáli sínu eins og kostur er t.d. með fjarnámi.
  6. Nemendur með annað móðurmál en íslensku fá eigið móðurmál metið inn í námsferil þar sem við á og að undangengnu mati.
  7. Öllum nemendum sé auðveldað að taka þátt í námi og öðru starfi á íslensku innan skólans. Nemendur með annað móðurmál, sem hefja nám við íslenskubrú skólans, gangist undir leiðbeinandi stöðupróf í íslensku. Þau fái íslenskukennslu á íslenskubrú með það að markmiði að búa þau undir nám á öðrum brautum skólans. Skiptinemar eigi kost á íslenskuáföngum á íslenskubrú í bland við aðra áfanga eins og kostur er ásamt öðrum stuðningi eftir því sem við á.
  8. Skólinn stuðlar að aukinni þekkingu á fjölmenningu og mismunandi menningarheimum. Í því skyni beitir skólinn sér fyrir nýsköpun í námi og kennslu á þessu sviði svo og aukinni þátttöku kennara og nemenda í alþjóðlegu samstarfi.
  9. VMA hvetur til erlends samstarfs starfsfólks og nemenda. Sérstaklega eru nemendur hvattir til að nýta sér þau tækifæri sem bjóðast til að stunda tímabundið starfsnám erlendis, í tengslum við samninga skólans þar að lútandi.
  10. Starfsfólk með annað móðurmál sinni starfi sínu á íslensku eftir eðlilegan aðlögunartíma. Símenntunarmiðstöðvar bjóða upp á íslenskunámskeið ætluð fólki með annað móðurmál en íslensku og hvetur VMA starfsfólk til að sækja þau. Óska má eftir að sitja íslenskunámskeið á vinnutíma.
  11. Þörfum táknmálstalandi nemenda og starfsfólks sé mætt þannig að notendur íslenska táknmálsins geti notað það til jafns við íslensku við nám og störf í skólanum. Táknmálstúlkar séu tiltækir þegar þeirra er þörf, bæði í kennslustundum og öðrum samskiptum starfsfólks og nemenda, svo og á fundum ef við á.
  12. Kennarar eru hvattir til að fylgjast með og nota íðorðasöfn í faggrein sinni og miðla íðorðum til nemenda og almennings.
  13. Allir fundir og önnur stjórnsýsla skólans fari fram á íslensku. Stjórnendur sjái til þess að starfsfólk sem ekki skilur íslensku fylgist með málum og geti tekið þátt innra starfi skólans eftir því sem nauðsyn krefur.
  14. Skrifleg gögn í stjórnsýslu skólans og opinberar upplýsingar, s.s. fundarboð, fundargerðir, auglýsingar og svo framvegis, séu ævinlega á íslensku, en enskur texti fylgi með þar sem við á. Einstaka fundargögn geti þó verið á erlendu máli ef sérstakar ástæður eru til.
  15. Nemendur og starfsfólk eigi kost á að nýta sér máltæknibúnað fyrir íslensku, svo sem leiðréttingarforrit, talgervla, talgreina og þýðingarforrit. Áhersla sé lögð á máltæknibúnað sem nýtist fötluðu fólki í námi og starfi.
  16. Skólinn hugi að íslensku við notkun gervigreindarhugbúnaðar. Skólinn veiti leiðbeiningar um ábyrga notkun gervigreindar og fylgist með þróun hennar og áhrifum á íslensku í öllu starfi skólans.
  17. Tölvuumhverfi í VMA sé á íslensku eftir því sem kostur er. Sjálfgefið notendaviðmót alls algengs hugbúnaðar sem starfsfólk og nemendur nota innan skólans verði á íslensku.
  18. Skólameistari ásamt fagstjóra í íslensku og verkefnastjóra erlendra nema standi fyrir kynningu stefnunnar og endurskoðun eftir þörfum.

Skólameistari ber ábyrgð á málstefnunni og getur heimilað tímabundin frávik frá einstökum ákvæðum hennar ef nauðsyn krefur.

Stefna þessi var lögð fram á kennarafundi 22.11.2024

Getum við bætt efni síðunnar?