Útskrift VMA fer fram í Hofi 29. maí 2026
Útskrift frá Verkmenntaskólanum á Akureyri fer fram í Hofi föstudaginn 29. maí klukkan 16:00. Gera má ráð fyrir að athöfnin taki um tvær klukkustundir. Útskriftarnemendur eru beðnir um að mæta klukkan 15:15.
Æfing fyrir athöfnina verður haldin daginn áður, fimmtudaginn 28. maí klukkan 12:00 í Hamraborg, stóra sal Hofs, og tekur hún um 30–40 mínútur. Nemendur sem ekki eru á Akureyri eða í nágrenni þurfa ekki að gera sér ferð á æfinguna.
Útskriftarnemar hafa nú þegar fengið tölvupóst með mikilvægum upplýsingum, þar á meðal skráningarskjali á athöfnina.
Gert er ráð fyrir að hver nemandi geti boðið þremur gestum en ætla má, vegna fjölda útskriftarnema, að takmarkað pláss verði fyrir aðra gesti.
Athygli er vakin á því að aðgangur nemenda að Menntaskýinu (Office 365 og Teams) verður lokaður fjórum vikum eftir útskrift. Nemendur eru hvattir til að vista gögn sín tímanlega.
Þeir nemendur eða gestir sem þurfa sérstaka aðstoð vegna hreyfihömlunar eru beðnir að láta skrifstofu skólans vita með góðum fyrirvara.