Fara í efni

Þorrinn tekur völdin

Hluti af hinum klassíska gamla þorramat.
Hluti af hinum klassíska gamla þorramat.

Nú er, samkvæmt hinu gamla íslenska dagatali, skollinn á þorri. Hann hófst formlega sl. föstudag á svokölluðum bóndadegi.

En hvað er þorri? Samkvæmt gamla íslenska tímatalinu var hann fjórði mánuður vetrar og hófst jafnan á föstudegi á bilinu 19. til 25. janúar. Í ár hófst þorri, sem stendur í fjórar vikur, sem sagt sl. föstudag, 23. janúar.

Bóndadagur, fyrsti dagur í þorra, á sér langa sögu. Jafnan var þessi mánuður harðasti vetrarmánuðurinn, frá lokum janúar til loka febrúar, þó svo að veðurguðirnir hafi töluvert ruglast í ríminu á síðari árum og við höfum fengið afar milda vetur síðustu ár. En það var nánast árvisst hér á árum áður, þegar bændasamfélagið var alls ráðandi á Íslandi, að alvöru vetur var á þessum tíma og fyrsti dagur þorra var tileinkaður bóndanum því í hans verkahring var að sjá um útiverkin og bera ábyrgð á fóðurbirgðum og þar með afkomu heimilisins yfir vetrarmánuðina.

Í stað þorra í hinu forna íslenska tímatali látum við okkur nægja mánuðina janúar og febrúar en höldum engu að síður í þann forna sið að halda þorrablót eða blóta þorra, eins og það er kallað. Eiginleg merking orðsins blót er fórn. Þorrinn var persónugervingur hins kalda og langa veturs. Að blóta þorrann hafði því þá merkingu að færa þorranum mat eða gjafir og ýta þannig undir að hann yrði mildur við fólk og búfé.

Þessi upprunalega merking þorrablótsins hefur auðvitað fyrir löngu fallið í gleymskunnar dá en eftir sem áður lifir sú hefð góðu lífi út um allt land, ekki síst í hinum dreifðari byggðum, að fólk komi saman og haldi þorrablót. Borði þjóðlegan íslenskan mat eins og hangikjöt, svið, saltkjöt, harðfisk, súrmat af ýmsum toga og hákarl, geri upp liðið ár í máli, söng og myndum á gamansaman hátt og stigi svo dans. Í mörgum sveitum eru þorrablót sannarlega hin eiginlega árshátíð og að baki liggur mikil vinna þorrablótsnefndar við skipulagningu og að setja saman hinn árlega annál.

Vonandi höldum við Íslendingar þeim sið um ókomin ár að koma saman og blóta þorra, þó svo að upphaflega merking þorrablótanna hafi smám saman fallið í gleymskunnar dá. En það gerir ekkert til, stóra málið er að halda í hefðirnar.

Gleðilegan þorra!