Sýnum stuðning við krabbameinssjúk börn og fjölskyldur þeirra!
04.09.2026
Í tilefni af Treyjudeginum 2026, sem er í dag, voru margir nemendur og kennarar VMA í hinum ýmsu bolum - í öllum regnbogans litum. Treyjudagurinn er nú haldinn í fyrsta skipti á Íslandi en hann hefur verið haldinn víða um heim í mörg undanfarin ár í því skyni að sýna stuðning við börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra.
Börn með krabbamein - styrktarfélag stendur fyrir þessum degi en það var stofnað árið 1991 til þess að styðja við bakið á krabbameinssjúkum börnum og fjölskyldum þeirra.
Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhalds treyjunni sinni og sýnir þessu mikilvæga málefni stuðning og samstöðu.
Nánari upplýsingar um Treyjudaginn hér.