Fara í efni

Stundatöflur og óskir um töflubreytingar í Innu vorönn 2026

Stundatöflur og óskir um töflubreytingar í Innu vorönn 2026

Stundatöflur nemenda hafa verið birtar og um leið opnað fyrir óskir um töflubreytingar í INNU. Beiðnir um töflubreytingar fara fram í gegnum Innu og standa frá mánudeginum 5. janúar og til kl. 16 miðvikudaginn 14. janúar.

Nemendur eru beðnir um að kynna sér vel leiðbeiningar um töflubreytingar sem eru á heimasíðu skólans. Nemendur hafi samband við sinn sviðsstjóra eða námsráðgjafa í gegnum tölvupóst.

Útskriftarefni geta haft samband beint við sinn sviðsstjóra.

Eftirfarandi þarf að hafa í huga:

  • beiðnir um töflubreytingar sem byggðar eru á vina- eða kennaranótum verða líkast til ekki samþykktar nema mjög góðar ástæður liggi að baki.
  • ef nemandi er með 36 tíma í töflu eða meira, er ólíklegt að beiðni um viðbót í töflu verði samþykkt.
  • nemendur verða að fylgjast með stundatöflunum sínum í INNU til þess að sjá hvort breytingar hafa verið samþykktar eða ekki
  • rafrænar beiðnir eru afgreiddar daglega.

Vinsamlegast athugið að verið er að vinna í að koma á sjálfvirku vali í Innu og því eru margir nemendur með áfangaval fyrir næstu 3-4 annir.

Vinsamlegast athugið einnig að það kann að þurfa að fletta áfram um eina viku í stundatöflu til að sjá alla stundatöfluna.

Stokkakerfi

Sviðsstjórar:

Unnur Ása Atladóttir, sviðsstjóri verknámsbrauta (unnur.asa.atladottir@vma.is)

Anna María Jónsdóttir, sviðsstjóri stúdentsprófsbrauta (anna.m.jonsdottir@vma.is)

Sigrún Kristín Jónsdóttir, sviðsstjóri brautabrúar og starfsbrautar (sigrun.jonsdottir@vma.is)

Námsráðgjafar:

Helga Júlíusdóttir (helga.juliusdottir@vma.is)

Svava Hrönn Magnúsdóttir (svava.h.magnusdottir@vma.is)