Handboltinn alltaf haft aðdráttarafl
Í vikunni var greint frá því að Svavar Ingi Sigmundsson (f. 2000) hafi verið ráðinn yfirmaður handboltamála hjá KA á Akureyri en undanfarin tvö ár hefur hann gegnt starfi yfirþjálfara handknattleiksdeildar félagsins. Svavar Ingi lauk stúdentsprófi af íþrótta- og lýðheilsubraut VMA árið 2020.
„Þegar ég lauk stúdentsprófi frá VMA sá ég þetta starf ekki fyrir. Veturinn eftir Verkmenntaskólann var ég einn vetur stuðningsfulltrúi í Síðuskóla og jafnframt spilaði ég handbolta með KA og stefndi á atvinnumennsku. Ég hef alltaf verið markmaður í handbolta og raunar var ég uppalinn í Þór en skipti yfir í KA þegar Stefán Árnason þáverandi þjálfari KA hafði trú á mér og vildi fá mig í liðið.
Eftir veturinn sem stuðningsfulltrúi í Síðuskóla fékk ég aukinn áhuga á sálfræði, flutti suður og fór að læra hana í Háskólanum í Reykjavík. Ég var í náminu í tvö ár en lauk því ekki og flutti aftur norður og tók við yfirþjálfarastöðunni í handboltanum hjá KA og núna fer ég í nýtt starf yfirmanns handboltamála hjá félaginu. Eftir sem áður verð ég yfirþjálfari og hef á minni könnu eitt og annað varðandi yngri flokkana auk þess að þjálfa yngstu flokkana. Einnig vinn ég með meistaraflokkum karla og kvenna og sé m.a. um ýmis samskipti við HSÍ fyrir hönd félagsins. Þetta er vissulega viðamikið starf og er nýtt innan KA og því verður mitt að móta það,“ segir Svavar.
Hann segist horfa með hlýju til áranna í VMA, þar hafi hann eignast marga góða vini. Hann verði að viðurkenna að oft og tíðum hafi hugur hans verið meira í handboltanum en náminu, í honum hafi hann ætlað sér stóra hluti. Með meistaraflokki KA spilaði Svavar 2017-2021 en þegar hann var í sálfræðináminu í HR spilaði hann um tíma með FH en varð að hætta vegna meiðsla. Hann þjálfaði einnig yngri flokka hjá FH og sá um markmannsþjálfun yngri flokka og meistaraflokks kvenna. Yngriflokkaþjálfunina hóf Svavar hjá KA árið 2017 og þrátt fyrir ungan aldur spannar þjálfaraferillinn orðið tæpan áratug.