Árshátíð VMA í kvöld
Árshátíð Verkmenntaskólans á Akureyri verður haldin í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri. Húsið verður opnað kl. 19.00 og borðhald hefst kl. 19.30. Að vanda verður árshátíðin hin glæsilegasta og verður í engu til sparað þegar nemendur stíga inn í töfrandi umgjörð kvöldsins.
Þema árshátíðarinnar í ár er „Skógur töfranna“, þar sem Íþróttahöllinni verður breytt í ævintýralegan heim þar sem töfrar, tónlist og gleði ráða ríkjum.
Veislustjórar kvöldsins verða Sveppi og Pétur, sem sjá til þess að stemningin verði í hæstu hæðum frá upphafi til enda.
Á meðan á borðhaldi stendur verður fjölbreytt skemmtidagskrá. Þar koma fram Klara Einars, Nussun og Húgó, Saint Pete og Færibandið, auk þess sem DJ Kurtheisi heldur uppi fjörinu á dansgólfinu þegar líður á kvöldið.
Dansleikurinn hefst að borðhaldi loknu kl. 23.00 og stendur fram eftir nóttu. Árshátíð VMA er einn af hápunktum félagslífs skólans og ár hvert safnast nemendur saman til að njóta góðrar skemmtunar, matar og tónlistar í glæsilegri umgjörð.
Miðasala á árshátíðarballið er enn í gangi og er hægt að tryggja sér miða á eftirfarandi slóð:
https://app.glaze.is/t/bIiGO2pPrOcR1ab8mmxi
Athygli er vakin á því að ölvun ógildir miðann.