TRÉS3SH03 - Tréstigar
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum lærir nemandinn um smíði tréstiga innanhúss með áherslu á algengustu útfærslur þeirra, samsetningar og smíði. Nemandinn lærir að búa til skapalón í fullri stærð eftir teikningum og hvernig þau eru notuð til að smíða þrep, stigakjálka og stigahandrið. Nemandinn fær þjálfun í að smíða tréstiga eða einstaka hluta þeirra í smækkaðri mynd og notar til þess hefðbundin verkfæri og algengar trésmíðavélar. Áfanginn er ætlaður bæði húsa– og húsgagnasmiðum.
Einingar 3
Þekkingarviðmið
- skipulagningu verkefna, upplýsingaöflun og áætlanagerð
- byggingareglugerð um stiga
- samsetningaraðferðum og smíðisfestingum á tréstigum og handriðum
- áhöldum og tækjum til smíði tréstiga og handriða
- öryggisreglum og öryggisbúnaði
Leikniviðmið
- vinna í samræmi við lög, reglugerðir og staðla
- vinna eftir séruppdráttum og deiliteikningum
- vinna sjálfstætt
Hæfniviðmið
- tengja saman alla þætti vinnustaðanáms og skóla
- undirbúa verkefni á eigin spýtur
- gera efnis- og verkáætlun
- vinna sjálfstætt eftir verkáætlunum
- vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað