Fara í efni

ÞJSK1VM02 - Gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar

Í boði : Vor

Lýsing

Í þessum áfanga er lögð áhersla á þjónustugæði og þjónustusamskipti. Vakinn, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar, er kynnt. Fjallað er um einkenni ferðaþjónustustarfa og ferðamanninn/gestinn sem viðskiptavin. Einnig er fjallað um samskipti í alþjóðlegu umhverfi þar sem sérstaklega er tekið á ólíkum viðhorfum og mismunandi menningu. Áhersla er lögð á tjáningu ásamt rafrænum samskiptum. Lögð er áhersla á að efla sjálfstæði, sjálfstraust og samskiptahæfni nemanda.

Einingar 2

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi góðrar þjónustu
  • þjónustugæðum og mikilvægi þess að setja sér skýr markmið í þeim efnum
  • einkennum ferðaþjónustustarfa
  • mikilvægi góðra samskipta í alþjóðlegu umhverfi, s.s. viðhorfi, menningu, fordómum o.fl.
  • ólíkum þörfum og væntingum viðskiptavina/ferðamanna/gesta

Leikniviðmið

  • skoða einkenni mannlegra samskipta
  • hlusta eftir og sinna ólíkum þörfum viðskiptavina/ferðamanna/gesta eftir mismunandi þjóðerni
  • vinna að bættri þjónustu og betri samskiptum

Hæfniviðmið

  • eiga samskipti við fólk af ólíku þjóðerni, kyni og aldri byggt á skilningi og virðingu
  • tjá sig skýrt og skilmerkilega í rituðu og töluðu máli
  • taka ábyrgð á eigin framkomu, afstöðu og sýn á þjónustuhlutverkið
  • gera sér grein fyrir sérstöðu ólíkra starfa í ferðaþjónustu
Getum við bætt efni síðunnar?