SMÍV3RE05C - Smíði og hönnun rafeindarása
Undanfari : SMÍV3RE05B
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur þjálfast í öguðum vinnubrögðum og læra um mikilvægi vandaðrar vinnu og vandaðs frágangs. Nemendur fá þjálfun í smíði rafeindabúnaðar sem styður sveinsprófsáfangana FJSV og MEKV. Nemendur smíða rafeindatæki samkvæmt forskrift kennara sem síðar fer til mats hjá sveinsprófsnefnd.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
- mikilvægi vandaðrar hönnunar
- þáttum sem spila inn í hönnun rása s.s. hitasveiflum, raka, iðustraumum, span og rýmdaráhrifum rása, utanaðkomandi truflunum, truflunum frá búnaði útávið.
Leikniviðmið
- vanda frágang rafeindarása með tilliti til hita, raka og utanaðkomandi truflana
- meta þörf á hlífum í takt við IP staðal um raka og rykþol
Hæfniviðmið
- hanna og smíða rás og vélbúnað sem tekur við stýrimerkjum frá tölvu.
- smíða fjarskiptabúnað til afmarkaðra nota með kassa og utanáliggjandi stillingum.