Fara í efni

RAMV2RS05 - Rafmagnsfræði 3

Undanfari : RAMV2ÞS05
Í boði : Haust

Lýsing

Lögð er áhersla á að nemandinn fái þjálfun í reikningum á RLC – rásum varðandi riðstraumsviðnám, samviðnám, spennuföll og fasvik bæði í hliðtengdum og raðtengdum rásum. Nemandinn lærir um desebelútreikninga og notkun þeirra, helstu síur og hvernig hægt er að búa þær til úr RLC-rásum og framkvæma reikninga á þeim. Auk þess kynnist nemandinn umhverfisháðum viðnámum og táknum fyrir þau. Nemandinn framkvæmir einnig mælingar á síum og öðrum RLC – rásum bæði með hjálp mælitækja, sveiflusjár og hermiforrits.

Einingar 5

Þekkingarviðmið

  • hvernig riðstraumsrásir með spólum og þéttum hegða sér við breytilega tíðni
  • virkni helstu sía
  • virkni umhverfisháðra viðnáma
  • desebel útreikningum og logarithmiskum kvarða

Leikniviðmið

  • framkvæma alla helstu reikninga í rað- og hliðtengdum RLC – rásum
  • segja til um hvernig viðám og fasvik svona rása breytist með tíðni
  • tengingum og mælingar á RLC – rásum
  • útreikningi/hönnun á einföldum síum

Hæfniviðmið

  • tengja eftir teikningu og mæla í RLC – rásum bæði raðtengdum og hliðtengdum
  • hanna einfaldar síur með þéttum viðnámum og spólum og gera á þeim mælingar
  • gera mælingar á RLC – rásum yfir ákveðið tíðnisvið
  • setja niðurstöður fram í desebelum og í logaritmiskum kvarða
  • nýta sér hermiforrit til mælinga á rásum
  • setja niðurstöður mælinga fram í skýrsluformi
Getum við bætt efni síðunnar?