RALV3RT05 - Raflagnir 5
Undanfari : RALV2TF03
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemandinn læri uppbyggingu á húsveitum fyrir allt að 100 A. Heimtaugum að einbýlis- og fjölbýlishúsum og helstu raflögnum og búnaði fyrir ljósa og tenglagreinar. Áhersla er lögð á kunnáttu á varnarráðstöfunum í stærri húsveitum. Farið verður í sérákvæði varðandi raflagnir í einstökum rýmum og staðsetningu á rafdreifiskápum. Sett verður upp aðaltafla, lagnir frá henni m.a. að þriggja fasa hreyfli. Gerða verða mælingar og kostnaðaráætlanir.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
- uppbyggingu og virkni varnarráðstafana
- öryggismælingum á húsveitu
- reglugerðarákvæðum og stöðlum varðandi neysluveitur
- mismunandi lágspennukerfum
Leikniviðmið
- tengja heimtaugar við húsveitur upp að 100 Amper
- setja upp og tengja aðaltöflu upp að 100 Amper
- tengja þriggja fasa tengla og klær
Hæfniviðmið
- ákveða stærð aðaltöflu
- mæla hringrásar viðnám, einangrunnarviðnám og fasaröðun
- gera úttektarskýrslu
- ákvarða röðun búnaðar í aðaltöflu
- skila verkinu fagmannalega frá sér