RABV3RE05C - Rafeindabúnaður og mælingar
Undanfari : RABV3RE05B
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfanganum lýkur með sveinsprófi. Unnið er með almennan rafeindabúnað, fjarskiptatæki, SM spennugjafa. Nemendur læra um virkni margmiðlunar- og gagna sendinga og móttöku. Nemendur fari í bilanaleit í rafeindabúnaði. Nemandi fái yfirsýn yfir ýmsar rásir og tæki sem notuð eru t.d. um borð í skipum, á spítölum og almenn heimilistæki. Nemendur læri um truflanir og áhrif þeirra á viðkvæman rafeindabúnað. Hvernig truflun getur haft áhrif á rafmagnsneti og í lofti og hvaða ráðstafanir eru mikilvægar í þessu samhengi og hvernig íhlutir gagnast.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
- virkni SM spennugjafa.
- notkun tækja og rása í ýmsu samhengi.
Leikniviðmið
- bilanagreina SM rásir
- bilanagreina rafeinda rásir.
- teikna og skilgreina ýmsar gerðir SM spennugjafa.
- greina upptök truflana og áætla ráðstafanir.
Hæfniviðmið
- sýna öguð og rökrétt vinnubrögð við vinnu.
- afla upplýsinga á interneti um íhluti og rásir.
- greina tegund og uppbyggingu SM rása.
- greina rafeindarásir upp í blokkmyndir og áætla virkni út frá teikningu.
- bilanagreina og gera við rafeindabúnað.