IÐNT3LF05 - Fagteikning málmsmíði
Undanfari : IÐNT3AC05
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Iðnteikning er framhaldsáfangi í teiknifræðum og því eiga nemendur að öðlast frekari þjálfun í lestri og gerð fagteikninga skv. gildandi stöðlum, reglum og reglugerðum sem gilda fyrir fagteikningar í málmsmíði. Að áfanganum loknum skulu nemendur vera einfærir um að lesa og vinna eftir teikningum á vinnustað. Jafnframt skulu þeir vera einfærir um að teikna riss og vinnuteikningu og útfæra smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
- stöðluðum merkingum og táknum sem sérkenna fagteikningar
- teikniaðferðum til að vinna fagteikningar
- ísómetrískum teikniaðferðum
- handbókum sem notaðar eru við gerð teikninga
Leikniviðmið
- lesa teikningar hönnuða
- táknsetja teikningar eftir stöðlum
Hæfniviðmið
- nýta samsetta heildarteikningu til að teikna vinnuteikningu af einstökum og samsettum smíðahlut
- nýta framlagðar teikningar eða eigin teikningar til að teikna vinnuteikningu af einstökum og samsettum smíðahlut