Fara í efni

HUGM2HÚ05 - Hugmyndafræði

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn kynnast aðferðum sem nýttar eru til þess að efla skapandi hugsun, þjálfa leikni í þróun hugmynda og auk hæfni sína við að koma þeim á framfæri. Nemandinn notar ýmsar aðferðir við skrásetningu hugmynda sinna og þróar þær m.a. í gegnum leik og tilraunir. Lögð er áhersla á að nemandinn skoði margvíslegar útfærsluleiðir, þar sem bæði er unnið sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Fjallað verður sérstaklega um mikilvægi ímyndunaraflsins í sköpunarferlinu og unnið með ólíkar leiðir til að virkja það. Að auki er áhersla er lögð á umræður og að nemendur læri hver af öðrum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugsanaferlinu frá hugmynd til listrænnar sköpunar
  • gagnreyndum leiðum sem hægt er að nýta við hugmyndavinnu og þróun hugmynda
  • samhenginu á milli hugmyndar og fjölbreyttrar úrvinnslu

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita opinni og leitandi hugsun við þróun hugmynda og beita margvíslegum aðferðum til að virkja ímyndunaraflið
  • beita sjálfstæði, frumkvæði og hugmyndaauðgi í vinnubrögðum og við framsetningu eigin hugmynda
  • virkja persónulegar leiðir við hugmyndavinnu og skrásetningu þeirra

Hæfnisviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • þróa hugmyndir sínar á opinn og skapandi hátt í gegnum tilraunir, fræðilegar aðferðir og eftir markvissu þróunarferli
  • nýta margvíslega möguleika við úrvinnslu og framkvæmd hugmynda
  • kynna hugmyndir sínar á fjölbreytta vegu, rökstyðja niðurstöður sínar og taka þátt í umræðum um eigin verk og annarra á uppbyggilegan hátt

Einingar 5

Þekkingarviðmið

  • hugkortum, hugstormun, spuna, þemavinnu og synektískri aðferðafræði
  • markvissum leiðum til að halda utan um hugmyndir sínar og úrvinnslu þeirra
  • þýðingu fjölbreyttrar gagnasöfnunar við þróun hugmynda
  • hugsunarferlinu frá hugmynd til listrænnar sköpunar
  • eigin persónulegu leiðum við hugmyndavinnu
  • samhenginu á milli hugmyndar, efnis, rýmis, tækni, aðferða og niðurstöðu
  • möguleikum rýmis, lita, ljóss, hljóðs, tækja og tóla við úrvinnslu og framkvæmd hugmynda

Leikniviðmið

  • vinna ferlið frá hugmynd til afurðar
  • beita opinni og leitandi hugsun við þróun hugmynda
  • sjá skapandi möguleika í mistökum sem hann gerir
  • skýra hugmyndir sínar á munnlegan, skriflegan og myndrænan hátt
  • beita margvíslegum aðferðum til að virkja ímyndunaraflið
  • koma auga á óvænt samhengi og gera það sýnilegt
  • beita sjálfstæði, frumkvæði og hugmyndaauðgi í vinnubrögðum við framsetningu eigin hugmynda

Hæfniviðmið

  • þróa hugmyndir sínar á opinn og skapandi hátt í gegnum tilraunir og fræðilegar aðferðir
  • kynna hugmyndir sínar á fjölbreyttan hátt
  • nýta margvíslega möguleika við úrvinnslu og framkvæmd hugmynda
  • vinna hugmyndavinnu í hóp og bera virðingu fyrir öðrum og skoðunum annarra
Getum við bætt efni síðunnar?