HJÚK3FG05 - Samfélagshjúkrun
Undanfari : HJÚK3ÖH05
Í boði
: Vor
Lýsing
Í áfanganum er fjallað um hugtök og kenningar í fjölskyldu- og geðhjúkrun ásamt heimahjúkrun og heilsugæslu. Farið er í kenningar um þroskaferil fjölskyldunnar, þarfir og verkefni fjölskyldumeðlima á ýmsum þroskastigum. Farið er í hugmyndafræði heilsueflingar og hjúkrunarviðfangsefni í tengslum við fjölskyldu- og heimahjúkrun. Fjallað er um algengar geðraskanir, hjúkrun, forvarnir og endurhæfingu geðsjúkra með áherslu á fjölskyldumiðaða nálgun. Áhersla er lögð á að nemandinn kynnist mikilvægi geðhjúkrunar á hinum ýmsu sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Í áfanganum er lögð áhersla á tengingu fræðilegrar þekkingar við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
- hugtökum og kenningum í fjölskyldu- og geðhjúkrun
- hlutverki heilsugæslu og heimahjúkrunar í samfélaginu
- hugmyndafræði þroska- og fjölskyldukenninga
- heilsueflingu og forvörnum
- einkennum og hjúkrunarmeðferðum algengra geðraskanna og fíknisjúkdóma
Leikniviðmið
- lýsa áhrifum veikinda einstaklings á fjölskylduna
- hjúkra einstaklingum með geðraskanir og fíknisjúkdóma
- beita þekkingu sinni í samvinnu við aðrar fagstéttir
- leiðbeina og fræða aðra um heilsueflingu og forvarnir
- nota kenningar og hugtök innan fjölskylduhjúkrunar í raunverulegum verkefnum
- lýsa einkennum algengra geðraskanna og fíknisjúkdóma
- nota viðurkenndar hjúkrunarmeðferðir í fjölskyldu- og geðhjúkrun
Hæfniviðmið
- túlka helstu kenningar og hugtök innan fjölskyldu- og geðhjúkrunar
- útskýra hlutverk heima- og heilsugæsluhjúkrunar
- bera saman hugmyndafræði mismunandi þroska- og fjölskyldukenninga
- vera þátttakandi í heilsueflingu og forvörnum í samfélaginu
- rökstyðja hjúkrunarmeðferðir í heima- og heilsugæsluhjúkrun