Fara í efni

FRLV3DE05 - Forritanleg raflagnakerfi 1

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum kynnast nemendur forritanlegum raflagnakerfum svo kölluðum heimilsistjórnarkerfum, tilgangi og möguleikum þeirra. Farið er í uppbyggingu kerfa, íhluti og virkni. Farið er skipulag við hönnun slíkra kerfa þ.e. virkniskrá kerfis, efnislista, lampaplön og undirbúning forritunar, skipulagi og forritun ljósasena. Nemendur fá þjálfun í forritun kerfa þannig að þeir geti á sjálfstæðan hátt sett upp og gengið frá slíkum kerfum til fulls og leiðbeint öðrum um notkun þeirra. Nemendur útbúa handbækur um kerfin.

Einingar 5

Þekkingarviðmið

  • helstu möguleikum forritanlegra raflagnakerfa
  • helstu íhlutum kerfanna og hlutverkum þeirra
  • helstu stýrimerkjum og lögnum milli þeirra
  • staðlaákvæðum er kerfin varðar

Leikniviðmið

  • leggja raflagnir og samskiptalagnir
  • tengja og ganga frá búnaði
  • forrita kerfi

Hæfniviðmið

  • velja búnað, lagnir og lagnaleiðir sem tilheyra kerfunum
  • tengja og skila góðum frágangi búnaðar
  • leiðbeina notendum um notkun kerfisins
  • velja efni og búnað í forritanleg raflagnakerfi
  • beita viðeigandi hugbúnaði til að forrita kerfi
Getum við bætt efni síðunnar?