FÉLA3ÞM05 - Mannfræði
Í boði
: Ekki alltaf
Lýsing
Í áfanganum er fjallað um þróunarsögu mannsins frá upphafi. Lögð er áhersla á að nemandinn kynnist mismunandi menningarheimum og fái þjálfun í að beita afstæðishyggju sem hluta af aðferðafræði fagsins. Áhersla er á eigindlegar aðferðir og kenningar í félagslegri mannfræði. Meðal þess sem verður fjallað um er fjölbreytileiki í fjölskylduformum, hjúskapur, sifjakerfi, kynhlutverk, lagskipting, stríðsrekstur, friðarferli, hagkerfi og trúarbrögð. Lögð er áhersla á heildræna sýn mannfræðinnar og hvaða hlutverki hún gegnir í hnattrænu samfélagi nútímans. Nemandinn fær m.a. innsýn í líffræðilega mannfræði, t.d. prímatafræði og erfðamannfræði.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
- sögu mannfræðinnar
- kenningum og sértækum hugtökum mannfræðinnar
- sérstöðu mannfræðinnar og skyldleika hennar við aðrar félagsvísindagreinar
- rannsóknum mannfræðinga fyrr og nú
- nokkrum fjarlægum og nálægum menningarheimum
- sjálfbærri þróun
Leikniviðmið
- leggja gagnrýnið mat á þróunarhugtakið bæði hvað varðar líffræðilega og menningarlega þróun
- beita aðferðafræði mannfræðinga
- skoða mismunandi samfélög með kenningum mannfræðinnar
- beita afstæðishyggju í umræðum og þekkja takmarkanir hennar
- lesa fræðilegan texta sér til skilnings
Hæfniviðmið
- vinna úr rannsóknargögnum og leggja mat á þau
- sýna frumkvæði í verki
- meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
- afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
- miðla skýrt og skilmerkilega fræðilegu efni í ræðu og riti