FAGV2RE01B - Fagteikning veikstraums
Undanfari : FAGV2RE01A
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemendur ná tökum á teikniforriti og að teikna einfaldar rafeindarásir. Nemendur læra um hefðbundin form teikninga, stöðluð tákn og merkingar. Nemendur æfa sig í mismunandi gerðum teikninga.
Einingar 1
Þekkingarviðmið
- teikniforriti sem býður upp á tákn og tengingu milli tákna
- helstu táknum í rafeindatækni
- formi sem teikningar eru unnar á
- merkingum teikninga og mikilvægi þeirra
- faglegu mikilvægi góðra teikninga
Leikniviðmið
- teikna rafeindarásir
- setja upp grunn fyrir teikningu með öllum atriðum merkinga
- teikna teiknitákn og geyma í táknabanka
Hæfniviðmið
- teikna rafeindarás á teikniforriti á faglegan og snyrtilegan hátt
- teikna rásateikningu af almennu rafeindatæki
- hanna íhlutatákn í teikniforriti til nota síðar
- geta flutt teikningar milli forrita