Fara í efni

ENSK3VG05 - Vísindaenska

Undanfari : ENSK2RM05
Í boði : Alltaf

Lýsing

Námið miðar að því að nemendinn auki færni sína í enskri tungu og bæti bæði vísindaorðaforða og almennan orðaforða svo og málskilning. Nemandinn er þjálfaður í ritun með ýmsum verkefnum sem tengjast vísindum. Einnig er nemandinn þjálfaður í töluðu máli, bæði með umræðum og formlegum fyrirlestrum. Fjallað er um siðferðileg álitamál vísinda og samfélagslega ábyrgð.

Einingar 5

Þekkingarviðmið

  • enskum orðaforða og hugtökum sem tengjast vísindum
  • orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
  • siðfræði vísinda, til dæmis í umhverfismálum, og samfélagslegri ábyrgð
  • mismunandi málsniði enskrar tungu

Leikniviðmið

  • lesa sér til gagns fræðilegar greinar um efni tengd vísindum
  • skilja talað mál sem fjallar um vísindi, til dæmis fyrirlestra
  • taka virkan þátt í samræðum um vísindaleg málefni
  • tjá sig munnlega, bæði formlega og óformlega, um efni sem tengjast vísindum sem hann hefur kynnt sér og undirbúið
  • skrifa og skilja ýmiss konar texta sem tengist vísindum, meðal annars útdrætti, skýrslur og rannsóknarritgerðir
  • beita málinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á og mætir hæfniviðmiðum þrepsins

Hæfniviðmið

  • skilja megininntak erinda og rökræðna sem fjallað er um í áfanganum
  • tileinka sér efni ritaðs texta sem tengist vísindum og nýta á mismunandi hátt
  • taka þátt í umræðum og færa rök fyrir máli sínu um vísindaleg málefni
  • tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt um málefni sem tengjast vísindum
  • skrifa texta um efni sem tengist vísindum og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við
  • nýta sér upplýsingatækni til fróðleiks og rannsókna
  • geta lagt gagnrýnið mat á texta
  • nýta sér fræðitexta og meta gildi heimilda
Getum við bætt efni síðunnar?