VMKA3IB08 - Verkleg matreiðsla, kaldur matur
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemanda. Nemandi vinnur jafnframt með nýjar útfærslur við úrvinnslu hráefnis og leitar eftir nýrri nálgun á hefðbundnum aðferðum. Hann vinnur verkefni er lúta að framsetningu og hönnun kaldra rétta. Verkefnin fela í sér framkvæmd, tímaáætlanir og uppskriftir. Verkefni eru lögð fyrir í FFMF4IB05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sígildum köldum réttum
- grugghreinsun og hlaupgerð
- ólíkri framsettningu rétta
- réttum verkferlum kaldra rétta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- hanna og setja fram kalda rétti á matarfötum
- hanna og setja upp köld hlaðborð
- hanna og gera kalda smárétti
- útbúa matseðla og matreiða þá fyrir mismunandi markhópa
- vinna með öðrum að úrlausnum verkefna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita almennum og sérhæfðum aðferðum við úrlausnir verkefna
- tileinka sér nýjungar og nýjar útfærslur við úrvinnslu hráefnis
- geta unnið heildstætt að verkefnum í matreiðslu eftir viðurkenndum matreiðsluaðferðum
- þróa eigin hugmyndir í matargerð.
- beita faglegu innsæi og kunnáttu til að meta fyrirfram niðurstöður verkefna.
- velja hráefni með hliðsjón af umhverfissjónarmiðum og verðmætasköpun.
- sýna fram á faglega víðsýni, sköpunarmátt og frumkvæði.