Fara í efni

VMHE3IB08 - Verkleg matreiðsla heitur matur

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemanda. Hann vinnur verkefni er lúta að framsetningu og hönnun rétta sem byggir á íslenskri og alþjóðlegri matarmenningu. Nemandi vinnur jafnframt með nýjar útfærslur við úrvinnslu hráefnis og leitar eftir nýrri nálgun á hefðbundnum aðferðum. Unnið er með matseðla fyrir mismunandi markhópa, með gæði og framlegð að leiðarljósi. Nemandi geti unnið heildstætt að verkefnum í matreiðslu eftir viðurkenndum matreiðsluaðferðum. Verkefni eru lögð fyrir í FFMF4IB05.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • almennum og sérhæfðum aðferðum við úrlausn verkefna
  • íslenskri og alþjóðlegri matarmenningu
  • afgreiðslu mismunandi veitinga
  • hráefnisnýtingu og hagsýni í innkaupum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • útbúa matseðla og matreiða fyrir mismunandi markhópa.
  • vinna með öðrum að úrlausnum verkefna
  • þróa nýjar nálganir á framsetningu rétta sem byggja á nútíma viðmiðum
  • taka sjálfstæðar ákvarðanir við ólíkar aðstæður
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • tileinka sér nýjungar og nýjar útfærslur við úrvinnslu hráefnis
  • skipuleggja verkferla og verkefnalista og vinna eftir þeim í matreiðslu
  • meta gæðakröfur mismundi hráefna
  • meta kröfur til hreinlætis á vinnustað
  • fyrirbyggja krossmengun
  • þróa eigin hugmyndir í matargerð
  • beita faglegu innsæi og kunnáttu til að meta fyrirfram niðurstöður verkefna.
  • velja hráefni með hliðsjón af umhverfissjónarmiðum og verðmætasköpun.
  • sýna fram á faglega víðsýni, sköpunarmátt, frumkvæði.
Getum við bætt efni síðunnar?