VINS3FB06D - Vinnustaðanám háriðna 4
Undanfari : VINS3FB06C
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandinn þjálfast í að taka sjálfstæðar faglegar ákvarðanir við dagleg störf á vinnustað, lærir að takast á við og mæta ólíkum þörfum viðskiptavina. Fær aukna leikni í að tala við og ráðleggja viðskiptavinum út frá ólíkum líffræðilegum þáttum. Þjálfast í að vinna sjálfstætt og undir tímapressu og lærir að takast á við óvæntar uppákomur. Öðlast góða þekkingu á hársnyrtivörum og reynslu í vörusölu og ráðleggingu til viðskiptavina. Tekur tillit til ólíkra menningaþátta viðskiptavina og lærir á vinnustaðamenninguna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ólíkum möguleikum og þörfum viðskiptavina.
- faglegri framkomu.
- mismunandi þáttum vörusölu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að vinna sjálfstætt við almenn störf á hársnyristofu.
- að ráðleggja viðskiptavini út frá líffræðilegum þáttum.
- samskiptum við samstarfsfólk.
- samskiptum við viðskiptavini.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- takast á við dagleg verkefni á vinnustaðnum.
- taka faglega á móti viðskiptavinum í síma og á staðnum.
- beita sköpun, hraða og góðri verktækni við vinnu sína.
- geta veitt faglegar ráðleggingar við hverskonar hársnyrtingu.
- geta unnið sjálfstætt við úrlausn verkefna og einnig sem partur af teymi.
- geta haldið skipulagi og tímaáætlun.
Símat.