Fara í efni

VINS3FB06C - Vinnustaðanám háriðna 3

Undanfari : VINS2FB06B
Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í vinnustaðanámi öðlast nemandinn aukna færni, reynslu og leikni í þjónustu við viðskiptavini, þjálfast í verktækni, hraða og faglegum vinnubrögðum við raunverulegar starfsaðstæður undir handleiðslu hársnyrtimeistara. Hann þjálfar með sér færni til samvinnu auk þess að vinna sjálfstætt og tilheyra hóp. Hann þjálfast í vinnu undir álagi. Lærir að þekkja mismunandi vörur og öðlast þekkingu á vörusölu.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • vinnustaðamenningu.
  • samvinnu á vinnustað.
  • skipulagningu og verkfærni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • að þjónusta viðskiptavini.
  • auknum hraða og verktækni við almenna hársnyrtingu.
  • vörusölu og ráðlegginga til viðskiptavina.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • vinna vel og faglega með öðrum á vinnustaðnum.
  • skipuleggja bókanir fram í tímann.
  • veita almenna hársnyrtingu til viðskiptavina undir handleiðslu meistara.
  • ráðleggja viðskiptavinum um vörur sem henta til heimanota.
Símat.
Getum við bætt efni síðunnar?