UTMV3MR04 - Útveggjaklæðningar í múraraiðn
Undanfari : STVI1MR03
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum eru tekin fyrir grunnatriði í byggingaeðlisfræði s.s. kröfur til bygginga, innri og ytri kraftar, burðarvirki og mismunandi álag. Í tengslum við það er fjallað um ýmsa almenna þætti hita‐, hljóð‐ og rakaeinangrunar og brunatæknilegar útfærslur á byggingum. Því næst læra nemendur um loftræst og óloftræst klæðningakerfi fyrir náttúrustein og keramikflísar á veggi og þök utanhúss. Fjallað er um uppbyggingu slíkra kerfa, klæðningarefni, festingar og upphengingu með áherslu á frágang á fúgum, köntum og aðliggjandi byggingarhlutum. Kennslan er að mestu bókleg þar sem lögð er áhersla á uppbyggingu kerfanna, klæðningu, sýnikennslu, smærri verkefni og heimsóknir.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu ytri og innri áraunum sem byggingar verða fyrir.
- burðarþoli og spennu í einstökum byggingarhlutum.
- grunnatriðum hita‐, raka‐ og hljóðeinangrunar.
- brunahönnun og brunavörnum í byggingum.
- eiginleikum og notkunarsviði algengra burðar‐ og klæðningakerfa.
- einstökum festingakerfum, kostum þeirra og göllum.
- loftræstum og óloftræstum klæðningakerfum fyrir náttúrustein og keramikflísar.
- einangrun og vindþéttingu undir loftræstar klæðningar.
- áhöldum og tækjum sem notuð eru við uppsetningu klæðningar.
- frágangi fúga, kanta og aðliggjandi byggingahluta.
- öryggisreglum og öryggisbúnaði við uppsetningu útveggjaklæðninga.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina mismunandi álag á byggingar og áhrif þess á efnisval og útfærslur.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir algengum mistökum varðandi einangrun.
Símat