URHV3AO05 - Undirvagn – rafræn hemlastjórnun
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Fjallað er um uppbyggingu, virkni og íhluti rafrænnar hemlastjórnunar og hvernig hún hefur áhrif á hemlagetu og stjórnun bifreiða og bilanagreiningu hemlakerfa. Nemendur fá víðtæka þjálfun í bilanagreiningu hemlakerfa, vélrænum og rafrænum hluta. Farið er yfir notkun verkfæra, mælitækja, tækniupplýsinga og skipulags við bilanagreiningu og lagfæringu hemlakerfa.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Uppbyggingu og virkni rafrænnar hemlastjórnunar.
- Verkfærum og tækjum sem notuð eru við bilanagreiningar.
- Tækniupplýsingum og skipulagi við bilanagreiningar.
- Mikilvægi vandaðra vinnubragða.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Útskýra virkni íhluta og heildarvirkni rafrænnar hemlastjórnunar.
- Framkvæma bilanagreiningar og viðgerðir á hemlakerfum á öruggan hátt.
- Nýta verkfæri, mælitæki og tækniupplýsingar á öruggan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Útskýra virkni og kosti rafstýrðra hemlakerfa.
- Framkvæma bilanagreiningar og viðgerðir á hemlakerfum á öruggan hátt.
Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.