UPPT1TU02S - Hagnýt tölvunotkun, gervigreind, hljóð, mynd og ýmis önnur forrit
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfangalýsing:
Í áfanganum kynnast nemendur hagnýtum þáttum tölvunotkunnar. Unnið verður með grunnatriði ritvinnslu og áhersla verður á ýmis forrit og notkunarmöguleika þeirra. Unnið verður með gervigreind, bæði verður nemendum kennt á möguleika hennar en einnig hvað ber að varst. Nemendur fræðast um örugga netnotkun og skoðaðar verða ýmsar samskiptareglur tengdar tölvusamskiptum, jákvæð tölvusamskipti og hvað ber að varast. Nemendur vinna með ýmis form tölvutækninnar sem nýtast bæði til náms og afþreyingar.
Markmið:
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að tölvur eru stór hluti af daglegu lífi okkar
- mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengnisreglum við tölvunotkun
- því að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti
- mikilvægi þess að kunna að setja upp aðgengilegan texta, skjöl og ýmsar kynningar
- að gervigreind er mikilvægur og stór þáttur í samfélaginu en jafnframt þarf að kunna að nýta sér hana til góðs
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér netið/samskiptavefi á öruggan og ánægjulegan hátt
- vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
- vinna með ýmis tölvuforrit og fara mismunandi leiðir í sköpunarferlinu
- átta sig á því að hugmyndir annarra eru oft ólíkar eigin hugmyndum
- greina á milli þess hversu áreiðanlegar upplýsingar eru á netinu
- nota sitt eigið netfang og tjá sig á viðeigandi hátt í gegnum tölvusamskipti
- Sækja sér upplýsingar og gögn með aðstoð gervigreindar
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum um örugga netnotkun
- auka sjálfstraust sitt og trú á eigin tölvulæsi
- lesa í leik- og samskiptareglur
- senda frá sér vel uppsett skjöl og ritaðan texta á skilmerkilegan og skilmerkilegan hátt
- koma hugmyndum og verkum sínum á framfæri
- prófa sig áfram með tölvuforritum og vinna að sköpun sinni á fjölbreyttan hátt
- Nýta sér þekkingu gervigreindar í fjölbreyttum tilgangi