Fara í efni

UPPT1GÁ02Z - Upplýsingatækni með áherslu á gagnsemi og ánægju

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er nemendum kennt að nýta sér margvíslegan tölvubúnað til gagns og ánægju við nám, störf og tómstundir. Lögð er áhersla á örugga netnotkun og verndun persónuupplýsinga.

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvernig hægt er að nota tölvur til afþreyingar á gagnleganhátt
  • hvernig hægt er að nálgast nauðsynlegar upplýsingar sem nýtast í daglegu lífi
  • hvernig helstu einföldu ritvinnslu-, glærukynninga og myndvinnsluforrit virka
  • hvernig helstu tölvupóstforrit virka
  • mikilvægi netöryggis og hugtakinu netglæpur
  • góðum netsamskiptum

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta tölvutækni meðal annars til afþreyingar og upplýsingaöflunar
  • vinna með helstu ritvinnslu- og glærukynningaforrit
  • vinna með einföld myndvinnsluforrit
  • eiga netsamskipti og vinna með einföld tölvupóstforrit
  • nota þekkingu sína til að hlusta og horfa á margvíslegt efni

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér tölvur og tölvubúnað á öruggan hátt
  • geta aflað sér nauðsynlegra upplýsinga á netinu og tekið þátt í samskiptum á sjálfstæðan og öruggan hátt
  • átta sig á notagildi tækninnar í daglegu lífi og tómstundum
  • átta sig hvað góð netsamskipti eru og ábyrgðinni sem fylgir því að eiga þau
Getum við bætt efni síðunnar?