UPPT1FO02Z - Upplýsingatækni og forritun
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum fær nemandi að kynnast undirstöðum forritunar. Áhersla er lögð á að leysa ýmsar þrautir með því að útbúa einfalda kóða og fá nemendur að prufa sig (orsök og afleiðing) áfram skref fyrir skref. Nemandi öðlast þannig aukna færni í rökhugsun og sköpunarhæfni og hæfni til gagnrýnnar hugsunar.
Markmið
Þekkingarviðmið – Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- einfaldri forritun
- hvernig mismunandi kóðar hafa áhrif á forritun
- rökhugsun að baki forritun
- hvar leita megi upplýsinga til lausna
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leysa einfaldar forritunarþrautir
- skrifa einfalda kóða
- leita leiða til lausna með samvinnu
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér einfalda forritun til gagns og gamans
- greina milli ólíkra forritunarleiða til ólíkra verka