UPPT1AF02S - Upplýsingatækni með áherslu á notkun algengra forrita
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfangalýsing:
Áhersla er á upplýsingalæsi í víðu samhengi og nemendur fá að kynnast ýmsum hliðum sem snúa að upplýsingatækni. Farið verður í grunnatriði í tölvumálum, reglur sem gilda í tölvusamskiptum og umgengni við tölvukerfi skólans. Nemendur munu kynnast og vinna í helstu kennslukerfum skólans jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla verður á að efla færni nemenda í vinnu með ritvinnslu-, glæru-/kynningar- og reikniforrit. Einnig verða forrit sem hægt er að nálgast á netinu skoðuð og nemendur vinna í þeim ýmis verkefni.
Markmið:
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að tölvur eru stór hluti af daglegu lífi okkar
- mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum við tölvunotkun
- því að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti
- mikilvægi þess að kunna að setja upp aðgengilegan texta, skjöl og ýmsar kynningar
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að greina á milli þess hversu áreiðanlegar upplýsingar eru á netinu
- að nýta sér netið á öruggan og ánægjulegan hátt
- vinna með ýmis tölvuforrit
- tjá sig á viðeigandi hátt í gegnum tölvusamskipti
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum um örugga netnotkun
- auka sjálfstraust sitt og trú á eigin tölvulæsi
- lesa í mismunandi tölvuumhverfi í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
- lesa í leik- og samskiptareglur
- senda frá sér vel uppsett skjöl og ritaðan texta á skilmerkilegan og snyrtilegan hátt