UHÞV2AO05 - Hemlabúnaður, virkni og þjónusta
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Fjallað er um uppbyggingu og virkni hemlabúnaðar bifreiða og þá krafta sem þar verka. Nemendur öðlast skilning á virkni íhluta og kerfinu í heild ásamt þeim þáttum hafa áhrif á hemlagetu. Unnin eru verkefni í ástandsskoðun íhluta og kerfis, hemlamælingu og viðgerðum. Farið er yfir notkun verkfæra, mælitækja og tækniupplýsinga (skoðunarhandbókar) með áherslu á öryggi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Uppbygginu og virkni hemlabúnaðar.
- Kröfum sem gerðar eru til hemlakerfa.
- Virkni hjálparbúnaðar í hemlakerfum.
- Öryggis- og vinnureglum þegar unnið er að þjónustu á hemlabúnaði bifreiða.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Útskýra virkni og íhluti hemlabúnaðar.
- Ástandsskoða og mæla hemlabúnað.
- Nýta upplýsingar úr viðgerðabókum og skoðunarhandbók.
- Fara eftir öryggs- og vinnureglum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Lýsa virkni mismunandi hemlabúnaðar bifreiða.
- Ástandsskoða, mæla og sinna viðhaldi á hemlabúnaði.
- Nota tækniupplýsingar frá framleiðanda og skoðunarhandbók til að tryggja rétta vinnuaðferð og virkni við þjónustu hemlabúnaðar.
Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.