Fara í efni

TEIK2PL04 - Teikningar og verklýsingar í pípulögnum II

Undanfari : TEIK1PL04
Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum þjálfast nemendur í lestri flóknari lagnauppdrátta og teikninga frárennsliskerfa og hreinlætistækja. Lögð er áhersla á hönnun vegna hljóðburðar, sniðmyndir, skurði og hlutamyndir af tengingu hreinlætistækja við lagnakerfi m.m. Farið er yfir hæðar- og málsetningar, efnisnotkun, einangrun lagna og brunavarnir með hliðsjón af reglum, reglugerðum og stöðlum og áfram er fjallað um verklýsingar og efnislista. Kennslan byggist að mestu á teikniverkefnum þar sem lögð er áhersla á að tengja saman forsendur hönnunar, lagnauppdrætti og verklýsingar.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • grunnatriðum í uppbyggingu frárennsliskerfa og staðsetningu hreinlætistækja.
  • ákvæðum byggingareglugerðar um fráveitulagnir.
  • íslenskum stöðlum um frárennslislagnir í jörðu og fráveitulagnir húsa.
  • stöðlum um mannvirkja- og tækniteikningar sem tengjast lagnauppdráttum.
  • tæknilegum útfærslum frárennsliskerfa og staðsetningu hreinlætistækja.
  • öllum gerðum uppdrátta og teiknitákna fyrir frárennsliskerfi og hreinlætistæki.
  • fagheitum og efnisnotkun í lagnateikningum fyrir frárennsliskerfi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nota Rb-blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga.
  • lesa og vinna með teikningar af frárennslislögnum og hreinlætistækjum.
  • lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingar.
  • gera efnisáætlun fyrir einfalt frárennsliskerfi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • teikna hreinlætistæki og frárennsliskerfi í hús.
  • beita teiknireglum við teiknun frárennsliskerfa og hreinlætistækja.
  • gera fríhendisrissmyndir, flatar- og rúmteikningar af lagnakerfum.
  • gera sniðmyndir, skurði og hlutamyndir af frárennsliskerfum og staðsetningu hreinlætistækja.
Símat og verkefnaskil
Getum við bætt efni síðunnar?