STAR1SV03Z - Starfsnám með áherslu á störf á almennum vinnumarkaði og skólalok
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandanum séu kynnt störf á almennum vinnumarkaði. Þar sem um lokaáfanga er að ræða er farið yfir skólalok og þá möguleika sem bjóðast nemandanum að námi loknu í samstarfi við félags- og búsetusvið sveitarfélagsins.
Markmið
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum störfum á almennum vinnumarkaði
- ýmsum möguleikum hvað varðar nám og störf að skóla loknum
- að komið sé að skólalokum
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- sinna ákveðnu starfi út frá sínum forsendum
- skoða framtíðarmöguleika að námi loknu
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- víkka reynslu sína og upplifun með þátttöku í atvinnulífinu
- taka ákvörðun og vera meðvitaður um hvað tekur við eftir útskrift