STAR1ST01S - Náms og starfsfræðsla með áherslu á byrjun starfsferils
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfangalýsing:
Í áfanganum kynnast nemendur helstu atvinnufyrirtækjum í nærsamfélaginu og þeim möguleikum sem þau bjóða upp á með tilliti til atvinnuþátttöku. Nemendur undirbúa sig fyrir starfsnám með gerð gagna sem hjálpa þeim við að komast á vinnumarkaðinn ásamt því að finna hvar áhugasvið þeirra liggur á vinnumarkaði. Nemendur fá kynningu á helstu reglum (skrifuðum sem óskrifuðum) sem gilda á vinnustöðum og farið verður yfir almenn samskipti á vinnustað. Nemandinn undirbýr starfsnám fyrir næstu önn.
Markmið:
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- atvinnutækifærum og fyrirtækjum í nærsamfélaginu
- þeim atriðum sem taka ber tillit til við starfsval
- tilgangi starfa og mikilvægi þeirra í tengslum við önnur störf
- eigin styrkleikum og mikilvægi góðra samskipta
- fjölbreyttum starfsheitum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meta eigin áhuga með tilliti til starfsvals
- Hafi gögn og kunnáttu til að sækja um starf
- bera ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum, t.d. að mæta á réttum tíma til vinnu
- taka þátt í samræðum, bera virðingu fyrir skoðunum annarra og sýna umburðarlyndi
- tengja viðeigandi starfsheiti við vinnustaði
- taka þátt í umræðum um ákveðin starfsheiti og sækja sér upplýsingar um ný og framandi starfsheiti
- vinna úr vettvangsheimsóknum með ýmsu móti
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í atvinnulífinu
- velja sér starfsvettvang
- vera ábyrgur starfsmaður og hæfur til samvinnu
- þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem í þeim felst
- átta sig á mismunandi kröfum og/eða menntun sem liggja að baki ýmissa starfsheita
- taka þátt í atvinnulífinu og gera sér grein fyrir samhengi milli atvinnugreina
- þekkja viðeigandi hegðun í vettvangsheimsóknum og í starfsnámi