STAR1SG02S - Náms og starfsfræðsla með áherslu á starfsgreinar
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfangalýsing:
Nemendur þjálfast í að taka þátt í atvinnulífinu og fá tækifæri til að fræðast um mismunandi starfsgreinar og störf þeim tengdum. Nemandinn fær tækifæri til að víkka reynsluheim sinn með þvi að upplifa og kynnast margvíslegum störfum. Fær fræðslu um réttindi og skyldur launþega, m.a. öryggismál á vinnustað.
Markmið:
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum starfsheitum
- fjölbreyttum vinnustöðum
- þeirri færni sem nauðsynleg er í mismunandi störfum
- í hverju störfin eru fólgin og námsleiðum í boði
- vinnuvernd, hættum og heilbrigði á mismunandi vinnustöðum
- helstu réttindum og skyldum launþega
- mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
- undirstöðuþáttum þess vinnustaðar sem hann kýs að starfa á í sínu starfsnámi
- þeim áhöldum, tækjum og tólum sem ætlast er til að viðkomandi nýti sér eða meðhöndli úti á vettvangi
- hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
- eigin styrkleikum og mikilvægi góðra samskipta
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tengja viðeigandi starfsheiti við vinnustaði
- taka þátt í umræðum um ákveðin starfsheiti
- sækja sér upplýsingar um ný og áður óþekkt starfsheiti
- taka þátt í umræðum tengdum störfum
- Leita sér upplýsinga um réttindi sín og skyldur
- velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
- vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn
- fylgja fyrirmælum
- fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
- fylgja samskiptareglum á vinnustað
- koma sér til og frá vinnu á réttum tímum
- bera ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum
- taka þátt í samræðum, bera virðingu fyrir skoðunum annarra og sýna umburðarlyndi
- meta hættur í vinnuumhverfi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem í þeim felast
- átta sig á mismunandi kröfum og/eða menntun sem liggja að baki ýmsum starfsheitum
- taka þátt í atvinnulífinu
- þekkja viðeigandi hegðun og efla áhuga og virkni í starfsnámi
- Átta sig á réttum leiðum til að nálgast upplýsingar eða viðeigandi aðstoð varðandi réttindi og kjör.
- Greina hættur á vinnustað og sýna rétt viðbrögð
- taka þátt í atvinnulífinu
- biðja um aðstoð ef þess þarf
- tilheyra starfsmannahópi
- vera ábyrgur starfsmaður
- vera hæfur til samvinnu
- nýta sér hlífðarbúnað og hjálpartæki á vinnustað og forðast hættur
- þekkja viðeigandi hegðun í vettvangsheimsóknum og/eða í starfsnámi