Fara í efni

STAR1RV03Z - Starfsnám með áherslu á verndaða vinnustaði, réttindi og skyldur á vinnumarkaði

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á að kynna nemandanum störf sem unnin eru á vernduðum vinnustöðum ásamt því að fara yfir réttindi og skyldur á vinnumarkaði.

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • störfum á vernduðum vinnustað
  • fjölbreyttum störfum vinnumarkaðarins
  • réttindum og skyldum vinnumarkaðarins

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • taka þátt í störfum á sínum forsendum
  • þekkja helstu réttindi og skyldur út frá sínum forsendum

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • víkka reynslu sína og upplifun á þátttöku í atvinnulífinu
  • átta sig á helstu réttindum er snúa að þeirra starfsnámi
Getum við bætt efni síðunnar?