Fara í efni

STAR1RS02S - Náms og starfsfræðsla með áherslu á réttindi og skyldur

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Nemandinn þjálfast í að taka þátt í atvinnulífinu og fær fræðslu um réttindi og skyldur launþega. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn fái tækifæri til að fræðast um mismunandi atvinnugreinar og störf þeim tengdum. Nemandinn víkkar út reynsluheim sinn með því að upplifa og kynnast margvíslegum störfum. Nemandinn undirbýr og vinnur úr starfsnámi og vettvangsheimsóknum sem hann tekur þátt í að öðrum kosti leysir hann vinnustaðatengd verkefni.

Markmið:

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hefðbundnu vinnuumhverfi
  • að launakjör eru mismunandi eftir starfshlutfalli og ráðningarsamningum
  • mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
  • mikilvægi þess að öllum réttindum fylgja ákveðnar skyldur
  • undirstöðuþáttum þess vinnustaðar sem hann kýs að starfa á í sínu starfsnámi
  • þeim áhöldum, tækjum og tólum sem ætlast er til að viðkomandi nýti sér eða meðhöndli úti á vettvangi
  • eigin styrkleikum og mikilvægi góðra samskipta

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • fylgja þeim skyldum sem krafa er gerð um á vinnustöðum
  • vera meðvitaður um eigin réttindi á vinnumarkaði
  • vinna úr vettvangsheimsóknum með ýmsu móti
  • velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
  • vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn og fylgja fyrirmælum
  • fylgja hreinlætis- og samskiptareglum á vinnustað
  • taka þátt í samræðum, bera virðingu fyrir skoðunum annarra og sýna umburðarlyndi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í atvinnulífinu
  • átta sig á styrkleikum sínum og möguleikum í atvinnulífinu sem tengjast áhugasviði
  • hafa yfirsýn yfir réttindi og skyldur launþega á Íslandi
  • taka þátt í umræðum um réttindi og skyldur á vinnustöðum til að efla áhuga og virkni í vettvangsheimsóknum og í starfsnámi
  • þekkja viðeigandi hegðun í vettvangsheimsóknum og í starfsnámi
  • tilheyra starfsmannahópi og vera ábyrgur starfsmaður
  • undirbúa sig fyrir atvinnuviðtal
Getum við bætt efni síðunnar?