STAR1ÖS02Z - Starfsnám með áherslu á ýmis störf innan skólans, öryggismál og samskipti
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandi kynnist ýmsum störfum innan veggja skólans. Lögð er áhersla á öryggismál og mikilvægi góðra samskipta á vinnustöðum.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ákveðnum verkefnum og störfum innan veggja skólans
- öryggismálum og almennum samskiptum á vinnustöðum
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- taka þátt í störfum á sýnum forsendum
- skilja mikilvægi öryggismála og góðra samskipta á vinnustöðum
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- víkka reynslu sína og upplifun á þátttöku í atvinnulífinu
- þekkja grunnþætti öryggismála á vinnustöðum