Fara í efni

STÆF1PV02Z - Stærðfræði daglegs lífs með áherslu á peninga og verðgildi

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið með grunnþætti stærðfræðinnar svo sem reikniaðgerðirnar fjórar, samlagningu, frádrátt, margföldun og deilingu. Sérstök áhersla verður lögð á fjármuni, gildi peninga, verðskyn og verðgildi ýmissa hluta. 

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • reikniaðgerðunum fjórum, samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu 
  • gildi og meðferð peninga 
  • hlutverki peninga í daglegu lífi 

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta sér reikniaðgerðirnar fjórar 
  • nota peninga og meta verðgildi hluta m.a. með því greina á milli þess sem er dýrt og ódýrt 
  • þekkja íslenskan gjaldmiðil 

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta reikniaðgerðirnar fjórar til gagns 
  • átta sig á hvernig peninga er aflað 
  • mikilvægi þess að fara vel með peninga 
Getum við bætt efni síðunnar?