STÆF1HB04S - Stærðfræði með áherslu á fjármálalæsi
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum er lögð megináhersla á fjármálalæsi í víðu samhengi. Farið verður yfir helstu persónulegu útgjöld í lífi fólks, heimilisbókhald og gildi þess að halda utan um eigin fjármál. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandinn hefur þegar tileinkað sér.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Mikilvægi réttinda og skyldna neytenda
- Mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur
- Virkni greiðslukorta
- Að stundum þarf að forgangsraða í fjármálum
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Lesa launaseðil
- Byggja upp sparnað á einfaldan og hagkvæman hátt
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Standa við þær skuldbindingar sem viðkomandi hefur sett sig í
- Halda utan um eigin fjármál með eða án aðstoðar