STÆF1DL04S - Stærðfræði daglegs lífs
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfangalýsing:
Í áfanganum er unnið með stærðfræði daglegs lífs með fjölbreyttum nálgunum.Lögð er áhersla á að tengja stærðfræðilega þekkingu við raunveruleg verkefni og aðstæður sem nemendur mæta í daglegu lífi. Það verður meðal annars gert með mismunandi verkefnavinnu, í gegnum veraldarvefinn, notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Hvar og hvenær stærðfræði kemur við sögu í daglegu lífi
- Metrakerfinu og ólíkum mælieiningum
- Gildi peninga
- Klukku, mismunandi tímabelti og tímaáætlanir
- Hvernig greina má einfaldar tölulegar upplýsingar, til dæmis úr töflum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nýta sér stærðfræðikunnáttu sína í daglegu lífi
- Fylgja dagsskipulagi og tímaáætlun
- Skilja og vinna með hugtök
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Taka þátt í stærðfræðilegum athöfnum daglegs lífs
- Átta sig á tíma- og dagssetningum
- Draga saman upplýsingar og átta sig á þeim
- Geta skipulagt tíma sinn
- Skilja einfaldar tölulegar upplýsingar sem gagnast þeim í daglegu lífi