Fara í efni

STÆF1AS02Z - Stærðfræði daglegs lífs með áherslu á reikniaðgerðirnar fjórar

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum verður unnið með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum í daglegu lífi. Lögð verður áhersla á grunnþætti stærðfræðinnar, samlagningu, frádrátt, margföldun og deilingu. Unnið verður að því að auka sjálfstraust og sjálfstæði nemanda í stærðfræði þannig að þeir geti með góðu móti unnið nokkuð sjálfstætt..

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • undirstöðuatriðum í grunnreikniaðgerðum stærðfræðinnar, samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu
  • mikilvægi stærðfræðinnar í daglegu lífi

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna sjálfstætt
  • nota vasareikni
  • nota algengi stærðfræðitákn
  • leysa úr stærðfræðilegum upplýsingum

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta stærðfræðikunnáttu sína við lausn viðfangsefna daglegs lífs
  • skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
  • fylgja þeim fyrirmælum sem gefin eru
  • Beita skipulögðum aðgerðum við lausn verkefna.
Getum við bætt efni síðunnar?