Fara í efni

SJÓN2ÞF05 - Þrívíddarformfræði

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn kynnist fjölbreyttri þrívíðri vinnu auk þeirra hugtaka sem tengjast skúlptúrum og þrívíðum verkum. Lögð verður áhersla á að nemandinn öðlist færni í að koma tvívíðum skissum í þrívítt form og að hann vinni með fjölbreyttan efnivið í úrvinnslu verka sinna. Ætlast er til að nemandinn beiti fjölbreyttum aðferðum við hugmyndavinnu og þróun og að hann skrásetji og setji þá vinnu fram með skipulögðum hætti. Nemandinn kynnist og kynnir sér verk listamanna sem vinna þrívíð verk og innsetningar. Nemandinn ígrunda verk sín í samvinnu við kennara og samnemendur.

 

 

 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtökum sem tengjast þrívíðri myndsköpun
  • þrívíðri myndlist og þekki listamenn sem vinna þrívíð verk
  • ýmsum stefnum og stílbrigðum í þrívíðri myndlist

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • móta þrívíð verk með fjölbreyttum aðferðum
  • meðhöndla efni og verkfæri til þrívíðrar myndsköpunar
  • beita helstu efnum og aðferðum í gerð þrívíðra myndverka
  • þróa þrívíð verk út frá eigin hugmyndum og tilraunum

 

Hæfnisviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja efni við hæfi til úrvinnslu þrívíðra verka
  • sýna áræðni og frumkvæði við útfærslu í þrívíðri vinnu
  • nýta sér sköpun, ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við þróun hugmynda, skissuvinnu og úrvinnslu
  • fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt

 

Getum við bætt efni síðunnar?