Fara í efni

SJÓN2MT05 - Mannslíkaminn í hönnun og listum - Teikning 2

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn lærir undirstöðuatriði í módel- og tísku- og karakterteikningu. Með margskonar efnum og aðferðum þjálfar hann sig í að yfirfæra þrívíð form mannslíkama og klæðnaðar á tvívíðan teikniflöt. Hann teiknar og mótar eftir lifandi fyrirmynd, beinagrind og tvívíðum myndum en einnig samkvæmt ímyndum sínum. Nemandinn rannsakar á agaðan hátt byggingu og mótun forma mannslíkama og tískugína með áherslu á jafnvægi, hlutföll og hreyfingu en beitir einnig frjálsri teikningu þar sem leikur, túlkun og tjáning er í forgrunni. Hann þjálfar sig í aðferðum til að meta stærðir, stefnu, hlutföll og afstöðu mismunandi líkamshluta og raða saman í heildarmynd. Hann gerir fjölbreyttar tilraunir í hugmynda og skissuvinnu og þróar verk sín í átt að persónulegri túlkun og stílfæringu á fatnaði og karakterum. Nemandinn skoðar dæmi úr myndlist og hönnun þar sem mannslíkaminn, tíska og karaktersköpun er viðfangsefnið. Nemandinn ígrundar og ræðir um verk sín og vinnuferli í samvinnu við kennara og aðra nemendur og setur eign verk fram til kynningar á skýran hátt. 

 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • jafnvægi, hlutföllum, hreyfingu og formmótun mannslíkama og tískugína í samhljómi við beina og vöðvabyggingu

Leikniviðmið 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tengja sjónræna rannsókn á umhverfi við hreyfingu handar og yfirfæra það sem hann sér á tvívíðan teikniflöt
  • teikna og móta eftir lifandi fyrirmynd bæði á agaðan og rannsakandi hátt og frjálst og hratt
  • móta form mannslíkamans í samhljómi við beina- og vöðvabyggingu
  • teikna módel og tískugínur í jafnvægi og réttum hlutföllum í mismunandi stöðum
  • beita hjálparaðferðum til að meta stærðir, stefnu, hlutföll, jafnvægi og afstöðu mismunandi líkamshluta
  • teikna mismunandi áferð og efniseiginleika í klæðnaði og flatar vinnuteikningar í tískuhönnun 
  • teikna út frá ímyndunarafli og þróa hugmyndir sínar með rannsóknar og skissuvinnu
  • beita margvíslegum efnum og aðferðum í teikningu 

Hæfniviðmið 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • þróa eigin hugmyndir og stíl í módel-, tísku- og karakterteikningu á sjálfstæðan hátt með rannsóknar og skissuvinnu
  • nýta verk listamanna og hönnuða sem hafa unnið með mannslíkama, tísku og karaktersköpun sem innblástur fyrir eigin verk 
  • ígrunda verk sín og vinnuferli í samræðum við aðra nemendur og kennara og setja eign verk fram til kynningar á skýran hátt  
Getum við bætt efni síðunnar?