SÁLF1HS02S - Sálfræði, hugsun og sjálfsmynd
Lýsing
Þetta er hagnýtur kynningaráfangi í sálfræði fyrir nemendur á starfsbraut. Í áfanganum er fjallað um helstu viðfangsefni sálfræðinnar og hvernig má hagnýta sálfræði til þess að efla þekkingu á hugsun, hegðun, tilfinningum og sjálfsmynd. Nemendur kynnast helstu kenningum sálfræðinnar, hvernig hægt er að efla sjálfsmynd, auka tilfinningalæsi, hlúa að styrkleikum sínum og hvernig má lesa hegðun og aðstæður á mismunandi hátt. Einnig verða rannsóknaraðferðir sálfræðinnar kynntar. Mikil áhersla er lögð á að tengja efni áfangans við reynsluheim nemenda og auka þannig skilning hans á eigin hegðun og annara ásamt því að auka víðsýni og rökhugsun.
Markmið:
Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu kenningum sálfræðinnar
- áhrifum sjálfsmyndar og sjálfstrausts
- ferli hugsana og tilfinninga
- hvernig hægt er að hafa áhrif á eigin tilfinningar og hugsanir
- kenningum um styrkleika
Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- bera kennsl á eigin styrkleika og annara
- skoða hegðun annara og skilgreint hana út frá kenningum sálfræðinnar
- afla sér upplýsinga með því að lesa styttri fræðilega texta
Nemandinn skal geta hagnýtt sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera betur læs á mannlega hegðun og umhvefi
- þekkja leiðir til þess að efla hamingju og bæta eigin líðan
- greint eigin styrkleika og annara
- styrkt sjálfsmynd sína