SAGA1SÍ02Z - Saga með áherslu á Íslandssögu
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Markmið áfangans er að nemandi kynnist mikilvægum þáttum í sögu Íslands og þeim áhrifum sem þeir hafa haft á samfélagsþróun á Íslandi. Nemendur öðlast þekkingu á helstu atburðum í Íslandssögunni og þjálfist í að bera saman fortíð og nútíð.
Markmið
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- völdum atriðum úr Íslandssögunni.
- helstu persónum sem mótað hafa Íslandssöguna.
- mikilvægi gagnrýninnar hugsunnar.
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla sér upplýsinga um valin atriði í Íslandssögunni.
- nota skapandi og gagnrýna hugsun við verkefnavinnu.
- miðla upplýsingum sem hann aflar sér og getað tekið þátt í samræðum um efnið.
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera meðvitaður um sögu Íslands.
- bera saman nútíð og fortíð.
- skilja hvernig sögulegir atburðir hafa áhrif á nútímasamfélög.