Fara í efni

SAGA1MS04S - Helstu viðburðir mannkynssögunnar

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Markmið áfangans er að kynna nemendum nokkra valda þætti úr mannkyssögunni. Kennari velur þá þætti sem kenndir eru hverju sinni. Þar undir geta verið þættir um fornmenningarsamfélög, stríðsátök, tækni- og framfarasögu, mótun þjóða og þættir úr nútíma menningarsögu.

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • völdum þáttum í mannkynssögunnar
  • nokkrum sagnfræðileg hugtök
  • tímabilum, atburðum og persónur í sögunni

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrifa texta um sögulegt efni
  • taka þátt í umræðum um atburði úr mannskynssögu
  • finna heimildir um valið efni

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja samhengi atburða við samfélagið á hverjum tíma
  • auka söguvitund með því að setja sig í spor fólks á öðru tímaskeiði
  • temja sér gagnrýna hugsun og sjálfstæðar skoðanir
  • meta samtímaatburði í sögulegu ljósi
  • átta sig á orsökum og afleiðingum sögulegra atburða
Getum við bætt efni síðunnar?