SAFS1NÍ02Z - Samfélagsfræði með áherslu á nærumhverfi og Ísland
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Markmið áfangans er að nemendur kynnist nærumhverfi sínu Íslandi í heild, mannlífi og menningu hvers landshluta fyrir sig.
Markmið
Þekkingarviðmið - Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- nærumhverfi sínu og Íslandi
- náttúrugæðum íslands og mikilvægi sjálfbærni
- félagslegu jafnrétti þjóðarinnar
Leikniviðmið - Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- afla sér upplýsinga um Ísland og nærumhverfið
- afla sér uppýsinga um hvernig hægt er að uppfylla eigin þarfir með tilliti til sjálfbærni og framtíðar landsins
- átta sig á hvað felst í félagslegu jafnrétti
Hæfniviðmið - Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera meðvitaður um nærumhverfi sitt
- vera meðvitaður og ganga vel um náttúru landsins
- vera meðvitaður um gildi þess að búa við félagslegan jöfnuð